Svart á hvítu - 01.10.1977, Blaðsíða 5

Svart á hvítu - 01.10.1977, Blaðsíða 5
Að mála, sýna og selja Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson Örn Jónsson Þjóðhátíðarárið var merkilegt ár fyrir íslenska myndlist. Þá gafst íbúum höfuðborgarsvæðisins tækifæri til aö líta þverskurð myndíöar hér á landi síðastliðin ellefu hundruð ár. Án tillits til hversu val sýningarverka tókst mátti draga mikinn lærdóm af þessari sýningu. Afgerandi einkenni var hve stóran hluta sýningarrúms málverk tóku, málverk frá þessari öld. Annar mikilsverður sannleikur var einnig greinanlegur, íslendingar höföu eignast sína gömlu meistaral. Enn frekari staðfesting á þjóðar- eigninni hefur síóan komið fram með fjölda yfirlits- sýninga á meisturum fortíðarinnar. Málarinn og málverkiö er oröinn rótgróinn þáttur í íslenskri menningu. íslenskir málarar hafa sérstöðu þó þeir byggi augljóslega á sam-vestrænni hefð. Málarinn og þá um leið myndlistamaðurinn hefur í dag fengió fastmótað hlutverk, sem viröist vera í beinu framhaldi af þróuninni síðastliðin 100 ár. Myndlistamanninum er ætlað aö sýna verk sín með ákveðnu millbili, verk sem unnin eru í ákveðin efni. Til að hann nái valdi á viðfangi sínu verður hann að afmarka sig við sem fæst efni og helst fylgja ákv- eðinni stefnu. Skýr greinarmunur er gerðir á málara og myndhöggvara milli afstrakt og fígúratífs. Gagnrýnendur dagblaóanna, réttmætir miðlar milli sýnenda og áhorfenda, setja fram kröfur um val mynda á sýningar. Málarinn á að gera fleiri verk en komast fyrir í sýningarsalnum, velja síðan úr það ,besta‘ til að mæta kröfum áhorfenda. Sýningin er endapunktur á langri þróun þar sem listamaðurinn býður vöru sína til kaups og umsagnar. Áhorfandinn hefur einnig fengiö hlutverk. Mynd- list er oröin sérstakt áhugasvið. Til þess að hann geti tekið ,rétta‘ afstöðu verður hann að hafa vissa lágmarks þekkingu. Hann á aö þekkja helstu lista- menn þjóðarinnar, vera samkvæmishæfur í helstu stefnum og straumum síðastliðin hundrað ár erl- endis og kunna kjaftasögur um hálfguðinn okkar Kjarval. Gagnrýnendur (hvort sem þeir eru lærðir eða leikmenn) hafa einnig sitt fasta hlutverk. Þeir til- kynna sýningar og gefa verkunum .einkunn' oftast út frá eigin fegurðarsmekk. Ef þeir fylgjast vel með meta þeir jafnvel nýjustu sýninguna út frá öðrum sýningum sama manns, eða reyna að greina áhrif annarra listamanna á verk sýnanda. Á síðustu árum höfum við fengið hóp listfræð- inga; verksvið þeirra hlýtur að veröa að greiða úr flækjum íslenskrar listasögu. > Allir hafa fastmótað verksvið. Listamenn undir- búa einkasýningar, en taka þátt í samsýningum á meðan til að gefa til kynna aö þeir séu enn að. Gagnrýnendur dagblaðanna hafa sinn vikulega þátt. Listfræðingar glíma við listasöguna og áhorf- endur, eða réttara sagt listunnendur, fara í frítíma sínum að njóta sýninga og ef pláss er á stofuvegg heimafyrir að kaupa. Listin er heimur út af fyrir sig. Það eina sem í fljótu bragði virðist ógna þessari stöðugu veröld er ójafnvægi milli myndlistamanna og listunnenda: Of margir listamenn fyrir of þröng- an markað. Málverk sýning sala Augljóslega eru hér settar fram miklar einfaldanir. En formlega séð virðast þær standast að mestu. Þeir sem reynt hafa að brjótast gegn þessari ímynd hafa annaöhvort mætt fádæma hneykslun eða af- skiptaleysi. Afstaðan til Súmmara segir sína sögu. Fyrstu sýningum þeirra var tekið með offorsi og skömmum. Þegar á leið einkenndist afstaða þeirra sem myndlist varðaði af sinnuleysi. Sýningar í SÚM voru sniðgengnar og nokkrum þeirra sem að gall- eríinu stóðu var neitað um inngöngu í fagfélag myndlistarmanna, FÍM. Þessi fagfélagsmórall manna sem telja sig arftaka „gömlu meistaranna' hefur átt þátt í að viðhalda þeirri einangrun sem ofangreindur starfsgrundvöllur felur í sér. Einan- grun sem fyrr var nefnd þröngur markaður. Myndlist og málverk er orðið það tengt í hugum landsmanna að það þótti tíðindum sæta að grafíktæknin var að vinna sér hylli. Þeir framsýnni hafa fyrir nokkru gert sér grein fyrir vandanum sem felst í að gera sýningarsali að helsta möguleikanum til að koma verkum á framfæri. Fyrir stuttu síðan var gerð tilraun til að sýna málverk á vinnustöðum, eða réttara sagt kaffistofum nokkurra vinnustaða. Til- raunin var allra góðra gjalda verð, en sýndi fyrst og fremst hvað málverkið er háð sýningarsalnum, eða réttum stofuvegg. Kaffistofurnar urðu að tíma- bundnum sýningarsölum. öllu vænlegri var hug- myndin um farandsýningar, sem fram kom um líkt leyti. Slík framtakssemi hefði þýtt raunhæfa útvíkk- un á markaðnum fyrir myndverk, þó óneitanlega virki það sem útflutningur frá hinum mettu til hinna sveltandi. Niðursuðuvarningurtil menningarneyslu þeirra sem hafa fisk undir steini. 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.