Birtingur - 01.01.1956, Blaðsíða 30
hug tónlistarþættir Björns Franzsonar sem
eru mesta kjarnmeti, veðurþættir Páls Berg-
þórssonar, málvöndunarákúrur Eiríks Hreins
'Finnbogasonar og áður hef ég talað um þætti
Björns Th. Tónlistin á sunnudagsmorgna hef-
ur ennþá sloppið við þá uppdráttarsýki sem
geisar í útvarpinu. Margir hafa gott af því
að spreyta sig á spurningaþætti Jóns Þórar-
inssonar á sunnudagskvöldum sem ber langt
af öðrum spumingaþáttum. En mér finnst
hann gera helzt til miklar kröfur til okkar
um þekkingu á skandínavatónlist. 1 þeim þætti
heyrist upplesari sem er einn hinna allra
ágætustu, það er Þorsteinn Hannesson óperu-
söngvari. Auk þess sem röddin er viðfelld-
in og lestrarhátturinn allur er efnið flutt
með þeim hætti sem fátítt er hjá upplesur-
um útvarpsins að þar fylgir skilningur á efn-
inu.
Hvemig er eiginlega með þessa milljón sem
V. Þ. var að gefa um daginn og hefur nú kom-
ið í verk að segja þjóðinni frá tveim mánuðum
eftir að útvarpsráð samþykkti þetta. Á þetta
að vera varanlegur sjóður? Eða á að ausa úr
honum á nokkmm ánun ? Allt virðist heldur á
huldu um hverskonar fyrirtæki þetta er. Og
hver á að veita féð? Væri ekki gott að ganga í
það að athuga þetta allt. Milljón eða ekki
milljón, mættum við fá meira að heyra?
Eínilegt tónskáld
Vegna þeirrar ánægjulegu fréttar að tón-
verk eftir kornungan Islending sem er að
nema erlendis hafi verið valið til flutnings á
alþjóðlegri hátíð nútímatónskálda 1 Stokk-
hólmi í sumar (ISCM) hringdi ég í Jón Þór-
arinsson tónskáld og spurði hvort ég mætti
hafa eitthvað eftir honum um hið efnilega
tónskáld sem hefur verið nemandi Jóns-
Þessi ungi maður er Leifur Þórarinsson og
verkið sem valið var eftir hann er sónata
fyrir fiðlu og píanó.
Jón Þórarinsson sagði:
Ég þekki Leif mjög vel. Hann var nem-
andi minn eina þrjá fjóra vetur í Tónlistar-
skólanum, í tónfræði og tónsmíðum. Auk
þess fylgdist ég mikið með honum í Vínar-
borg síðastliðinn vetur, þar var hann við
nám. Ég álít hann sé ákaflega efnilegt tón-
skáld. Hann er gæddur góðum og fjörmikl-
um gáfum og ríku hugmyndaflugi. Hann
hefur tamið sér mjög alvarleg vinnubrögð
og er að temja sér þau í æ ríkari mæli. Meðal
þeirra kosta sem ég vona að dragi hann
langt er meðfædd andstyggð á hverskonar
fúski sem því miður hefur borið óþarflega
mikið á hér.
Ég er á þeirri skoðim að hann búi yfir
fjölþættum listrænum gáfiun og séu ýmsir
vegir færir og þykist vita að hann fylgist
vel með, ekki aðeins í tónlist heldur líka öðr-
uin listgreinum, — og það finnst mér góðs
viti. Ég álít að þessi ungi maður eigi að fá
tækifæri til að nema og þroskast erlendis
og reyna krafta sína.
Á þessa leið talaði Jón Þórarinsson tón-
skáld um Leif Þórarinsson, en Leifur er
kunnur lesendum Birtings af grein sinni um
Stravinsky í fyrra.
24
J