Birtingur - 01.01.1956, Blaðsíða 36
Auguste Herbin: „Föstuclagur" nr. 2
þessarar hreyfingar er efalaust Manessicr. Hann hefur þá
sérstöðu, að hann er rikaflega trúaður. Um það bil helm-
ingur mynda hans lýsir trúarreynslu. í sömu andrá verður
að nefna Jean Bazaine, sem áður var á minnzt. Hann hef-
ur skrifað ágæta bók (Notes sur l'art), þar sem hann Jýsir
skilmerkilega afstöðu sinni til listar og náttúru og gerir
um lcið, að ég hygg, grein fyrir sjónarmiðum félaga sinna
þeirra Menessier, Singier, Le Moal, Lapique, Estéve, Gicha,
sem allir cru þekktir og góðir málarar.
Geta má þess til gamans að læriföður þessara málara,
Bissiére gamla, er nú fyrst að hlotnast verðug viður-
kenning, nokkru eftir að þeir sem hann studdi fyrstu fetin
eru orðnir heimsfrægir. Vex hróður hans jafnt og þétt,
enda er hann tvímælalaust cinn bezti málarinn í París nú
á dögum. Það var fyrir tilstilli hans að menn tóku að
gefa munsturvefnaði inkanna gaum, en áhrifa frá þeim
gætir í myndum hans.
Meistari hinnar geómetrísku abstraksjónar cr tvímæla-
Iaust franski málarinn Auguste Herbin (f. 1881). Hann átti
líka beztu myndina á sýningunni. Herbin cr einhver sér-
slæðasti og sterkasti persónuleiki nútíma listar og cinn
hinna fáu, sem virðast í raun og sannleika vera að endur-
nýja málaralist nútímans. I>að mætti kalla liann Picasso
vorrar kynslóðar. Hann hcfur komið fram með nýjar kenn-
ingar og fylgt þeim svo fast eftir í myndum sfnum að úr
hefur orðið stórljrotin list. í verkum hans cr eitthvað upp-
hafið eða ójarðneskt sem minnir á tónlist Bachs. Það er
eins og maður standi fyrir framan altaristöflur. Manni
finnst að myndir hans ættu að hanga á stöðum þar sem
ríkir þögn og andi mannsins leitar í hæðir. Litir lians eru
mjög skærir og hreinir, vinnubrögð fullkomin, sjálfsagi
hans og fágun með fádæmum á þessari öld hvers konar
óhemjuskapar í listum. Við hlið hans standa eldri og
yngri brautryðjcndur, og ber þá fyrst að telja jafnaldra
30