Íslenskt skákblað - 15.05.1927, Qupperneq 3
Í S L E N S K T SKÁKBLáB.
ítqefasdi : SKÁKSAMBAND ÍSLANDS, íioheyri.
II. árg.
Akureyri 15. mal 1927.
3. hefti.
KEPPBNDURIVIR UM HEIMSMEISTARATIGNINA.
Rjett um 6 ár eru nú liðin síðan Capablanca vann heimsmeist-
aratignina í skák af Dr. E. Lasker. Mikið hefir verið talað um það
síðan, hvort einhverjum yngri stórmeistaranna gæfist ekki tækifæri
til þess að berjast um þessa eftirsóttu tign, og stóðu þeir þá næstir
til þess Rubinstein og Aljechin.
Hinn fyrnefndi var þegar löngu búinn að geta sjer frægð um
heim allan og stóð áður næstur Capablanca til að fást við E. Lasker,
en honum yngri menn voru þá einnig risnir upp og hafa síðan
getið sjer enn meiri orðstír. Meðal þeirra var Aljechin fremstur.
Var mikið talað um það árið 1922, að stofna til einvígis milli hans
og heimsmeistarans, en vegna fjárhagslegra örðugleika um allan
heim eftir styrjöldina miklu varð ekkert úr þessu nema umtalið eitt,
og þegar næsta ár sýndi Capablanca á skákþinginu í London svo
mikla yfirburði yfir aðra meistara, að skákvinir álitu það þá tilgangs-
laust, að leggja fram fje. Lasker dró sig algerlega í hlje frá alvar-
legum skákum og kom fyrst aftur fram á sjónarsviðið 1924. Sýndi
hann þá aftur hinn frábæra skákstyrk sinn, þótt hniginn væri að
aldri, og var nú um stund ekki um annað talað en stofnað yrði
til nýs einvígis milli hans og Capablanca. En Lasker hafði þegar
eftir einvígið tekið það fram, að nú væri hann of gamall orðinn til
þess að ráðast í slíkt framar; hann mundi ekki hugsa til hefnda,
en hjer lægi verkefni handa yngri meisturunum til meðferðar.
Þá stóð Aljechin næstur, enda hafði liann nú greinilega sýnt
það, að hann væri verður þess. Síðan hafa bæst 2 menn við, þeir
Bogoljubow, eftir sigurför sína 1925—6, og Nimzowitsch, eftir hinn
mikla orðstír, sem Irann hefir getið sjer síðastliðið ár.
Aljechin og Nimzowitsch lrafa opinberlega skorað á heims-
meistarann, en ekki Bogoljubow. Þó skal hjer talað um alla þrjá,
þar eð líklegt er, að einhver þeirra muni ganga á hólminn þetta
eða næsta ár.
Alexander Aljechin er fæddur í Moskva 1892. Snemma gerðist
hann skákmannsefni mikið, og þegar 16 ára gamall sigraði hann
í einvígi meistarann þýska Bardeleben (+ 4 — 0). Síðan hefir hann
kept á mörgum meistaraþingum og jafnan staðið fremstur eða í