Íslenskt skákblað - 15.05.1927, Qupperneq 4

Íslenskt skákblað - 15.05.1927, Qupperneq 4
50 ÍSLÉNSKT SKÁKBLAÐ fremstu röð og skal hjer telja sigra hans: Hamburg 1910 7.-8. verðlaun, Karlsbad 1911 8, —11. verðlaun, Stokkhólm 1912 1., Schve- ningen 1913 1., Pjetursborg sama ár 1.—2., stórmeistaraþinginu í sama bæ 1914 3. verðlaun. í Mannheim 1914 var hann efstur (9 vinningar af 11 skákum), þegar heimsstyrjöldin skall á og sleit þá því þingi. Á ófriðarárunum átti Aljechin við mikil vandræði að búa og komst með naumindum úr lífsháska á byltingartímum Rússa. Sjálfur þykist hann varla hafa teflt 20 skákir þessi ár. Aftur kemur hann fram á allsheijarskákþingi Rússa 1921 og vann 1. verðlaun, en tap- aði engri skák. Svo 1922 í Pistyan 1.—2. verðlaun, London sama ár 2., Hastings 1. verðlaun, en í Vín 4.-6. verðlaun, Margate 1923 2.-3. verðlaun, Karlsbad sama ár 1.--3., New York 1924 3., Baden- Baden 1925 1. verðlaun án þess að tapa skák, Hastings 1926 1.— 2., Dresden sama ár 2. og í Semmering 2. verðl. Nú síðast hefir hann teflt á sex-meistaraþinginu í New York og hlaut þar 2. verðl. Annar maðurinn, E. D. Bogoljubow, er einnig Rússi, fæddur í Kiew 1889. Fyrsta þátttaka lians í meistaraþingi var í Mannheim 1914. Vegna styrjaldarinnar, sem þá skall yfir, var hann kyrsettur í Pýskalandi, þar eð hann var Rússi að þjóðerni, og varð að vera þar þangað til stríðinu lauk. Á þessum árum efldist hann mjög að skákstyrk og 1919 var hann talinn meðal fremstu stórmeistar- anna. Skal hjer einnig telja sigra hans: Stokkhólm 1919 1. verð- laun, Gautaborg 1920 3., Kiel 1921 1., Pistyan 1922 1., London 1922 5., Karlsbad 1923 1.—3. verðlaun. En mest eru afrek hans 1915: í Baden-Baden 4. verðlaun, Breslau 1., Leningrad 1., Moskva 1. og 1926 í Berlín 1. verðlaun. Bogoljubow er ekki staddur á þinginu í New York, en það er flestra álit, að hjer fái heimsmeist- arinn nóg að starfa að verjast þessum snilling. Þriðji maðurinn er A. Nimzowitsch, sem er landi hinna tveggja. Hann er fæddur í Riga 1886. Hann heíir þegar í 20 ár verið talinn meðal fremstu stórmeisíaranna, en þó eru afrek hans merkust síð- ustu 3 árin, er hann vann 1.—2. verðlaun ásamt Rubinstein í Marienbad 1925, og árið sem leið á meistaraþingunum í Dresden og Hannover 1. verðlaun án þess að tapa skák. Hann var þátt- takandi í skákþinginu í New York og náði þar 3. verðlaunum. Um taflmensku þessara þriggja meistara er í stuttu máli það að segja, að Aljechin er talinn djarfasti og fjölhæfasli skákmeistari nútímans. Bogoljubow er einnig kunnur að liðugri og fjölbreyttri

x

Íslenskt skákblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskt skákblað
https://timarit.is/publication/842

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.