Íslenskt skákblað - 15.05.1927, Blaðsíða 23
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
69
12. Bc4-d5! e6Xd5
13. Da4Xc6f Ke8-dS
14. Dc6Xa8f Kd8-d7
15. Da8-b7f Kd7-e6
16. Db7—cóf Bf8-d6
17. Be3-f4 Oefið.
Emil Schallop var fæddur í Friesack á Pýskalandi 1843. í fyrstu
stundaði hann heimspeki, en svo gerðist hann forstjóri fyrir hrað-
ritunardeild ríkisþingsins þýska. Hann var jafnan talinn með fremstu
skákmeisturum sinnar tíðar og töfl hans þóttu sjerlega eftirtektar-
verð vegna lipurðar og fjörs, og oft fjekk hann fegurðarverðlaun á
alheims-skákþingum, enda stóð hann þar jafnan ofatlega í röð
skákmeistaranna.
SKÁKTÍÐINDI.
Erlend.
50 ára afmæli sitt heldur Skáksamband Pýskalands í Magde-
burg 17.—30. júlí þ. á. Verður þá um leið háð meistaraþing (1.
verðlaun 3000 mörk) og aðalskákþing (1. verðl. 1500 m.).
Skáksamband Berlínar heldur 100 ára afmæli sitt í júní og þá
um leið skákþing fyrir »amatör«-meistara.
Reti tefldi 23. mars í Nurnberg 15 blindskákir við bestu skák-
menn tveggja fjelaga þar. Stóðu skákirnar yfir í 51/2 klukkustund,
en úrslitin urðu + 6 -r- 2 = 7.
Skákmeistaratignina fyrir London vann í þetta sinn O. Thomas
með 12’/2 vinning af 15 skákum.
Meislaratign fyrir París vann L. Schwartzmann með 13’/2 vinn-
ing af 16 skákum.
Meistaratignina fyrir Prag vann í þetta sinn Fr. Thelen með
10 vinningum af 12 skákum. Meðal keppendanna voru þeir Opö-
censky (7’/s vinning) og Kromadka (6V2 vinning). Meistaraþing
var háð þar í borginni 2. apríl.
Ákveðið er, að einvígið um heimsmeistaratignina skuli háð
milli Capablanca og Aljechin í september þ. á. í Buenos Aires.