Íþróttablaðið - 01.03.1927, Blaðsíða 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
23
Þær eru hollar og þroskandi fyrir allan líkaman,
ef réit er að farið. Verður íþróttaiðkendum því
ekki bent á aðra betri aðferð til þess að halda
sér við yfir veturinn, en að iðka þessar útiíþróttir.
Fyrst og fremst til þess að komast undan aftur-
för að vetrinum. Og svo til þess að ná þeim fram-
förum í þessum íþróttum, að vér þurfum ekki að
vera langt á eftir öðrum þjóðum. Það fer illa
saman að heita íslendingur og kunna ekki að
hlaupa svell á skautum. Sk. Sl<.
Frá Sambandsfélögunum.
Afmælisgjöf til í. S. í. Með bréfi dags. 8.
febr. síðastliðinn sendi Ú. M. F. Eyrarbakka skatí
til sambandsins, og fylgdu þessi orð: »Skatturinn
er að þessu sinni tvöfaldur. Við gerum það að
gamni okkar þetta ár, vonum að sambandið sé
lítilþægt þótt það sé nú orðið 15 ára. Það var
fundur hjá okkur á laugardaginn var. Kom þar
fram þessi tillaga og var samþykt í einu hljóði:
»Fundurinn samþykkir, að U. M. F. Eyrarbakka
greiði tvöfaldan skatt til I. S. í. fyrir yfirstandandi
ár, í tilefni af 15 ára afmæli þess, og væntir þess
eindregið að önnur félög innan sambandsins geri
slíkt hið sama«.
A fundinum voru 46 félagar.
]á, ef öll fél. í sambandinu — sem eru þar
skráð (sjá aðra grein hér í blaðinu) — gerðu slíkt
hið sama, þá væri mikið fengið, því »safnast þeg-
ar saman kernur*. Og ættu fél. bráðlega að sjá
árangur af slíkri gjöf ti'I sambandsins með afmæli?-
gjöf frá því: sendimanni til félaganna til leiðbein-
ingar og hjálpar.
Leikmót íþrótta- og málfundafél. Kjalnesinga
var háð síðastl. sumar (í 1. sinni?) á Kollafjarðar-
eyrum sunnud. 29. ág.
Keppt var þar í kringlukasti (3 menn), kúluvarpi
(2), spjótkasti (2), langstökki (7) og ísl. glímu í
tveim flokkum (4 í hvorum).
Úrslit voru þessi:
í kringlu, beggja handa:
1. Þorgeir Jónsson, 34,39+25,75 m.
2. Ásgeir Einarsson, 30,70+21,21 m.
3. ]ón ]ónsson, 28,05+23,00 m.
I kúlu, beggja handa:
1. Þorgeir ]ónsson, 9,595+9,215 m.
I spjóti, betri handar:
1. Ásgeir Einarsson, 44,07 m.
Langstökk:
1. Þorgeir ]ónsson, 6,03 m.
íslensk glíma:
I. fl. 1. Þorgeir ]ónsson (næstir 2 bræður hans
yngri).
II. 1. Kristinn Hansson.
»LeikvelIinum var ábótavant í ýmsu og vantaði
báða kasthringana«, segir fulllrúi í. S. í. á mótinu.
íþróttafélag Reykjavíkur varð 20 ára gam-
alt 11. mars síðastliðinn. Heildsali Andrear ]. Ber-
telsen, sem þá var hér verksmiðjustjóri í Ullarverk-
smiðjunni »Iðunn«, var aðalstofnandi félagsins og
formaður þess og kennari þar til hann flutti úr
bænum 1910. Þessi liðnu 20 hefir fél. verið að
smá vaxa og dafna. Það var framanaf að eins ein
fimleikadeild fyrir pilta, en nú hefir það orðið
starfandi 2 fimleikadeildir fyrir fullorðna pilta, 1
fyrir drengi og 2 stúlknadeildir. Og ætti það kost
á meiru húsnæði, væri það vaxið enn meir.
Ekki hefir það heldur legið á liði sínu hvað
frjálsar íþróttir snertir eða önnur mál til eflingar
íþróttum, eins og allir kannast við, sem lesið hafa
íþróttablaðið og áður Þrótt, sem fél. stofnaði og
gaf út um nokkurra ára skeið.
í tilefni af afmælinu gaf fél. nú út vandað ein-
tak af Félagsblaðinu, blaði sem það hefir haldið
út meðal félagsmanna innbyrðis síðastliðið starfsár.
Þetta afmælisblað er jafnstórt íþróttablaðinu tvö-
földu. Er í því 20 ára starfssaga félagsins, í aðal-
dráttunum, og 37 myndir frá þessum árum. Auk
leikmótahalds og -þótttöku hefir það haft feiknmarg-
ar fimleikasýningar með 1. fl. karla og báða kvenn-
flokkana, en að eins 5 með drengjaflokkinn á 2
árum, og 1 með annan flokk karla. Flestar hafa
sýningar þessar auðvitað verið hér í Reykjavík, 2
karlaflokkssýningar í Hafnarfirði, 1 á Þjórsártúni,
1 á Vífilsstöðum, 1 á ísafirði, 1 á Siglufirði, 5 á
Akureyri, 1 á Húsavík, 1 á Seyðisfirði, 1 á Norð-
firði og 1 á Eskifirði. 1. fl. kvenna hefir auk