Íþróttablaðið - 01.03.1927, Page 12
24
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Andreas J. Berlelsen
stofnandi í. R. — formaöur til 1910.
Ben. G. Waage
1914-1917
Formenn í. R. í 20 ár.
Haraldur Johannessen
frá 1925
Reykjavíkursýninga haft 1 sýningu á ísafirði, 3 á
Akureyri og 1 á Húsavík, og 2. fl. stúlkna (»Þær
hvítu<) hafa utan Rvk haft 2 sýningar á Akranesi,
1 á Þjórsártúni og 1 á Vífilsstöðum.
Eins og venjul. hélt fél. afmælis dansleik sinn
laugardaginn næsta afmælinu, nú 12. mars, í Iðnó.
Var húsið mjög skreytt, en ekki svipað því eins
smekklega, og því síður þjóðlega, eins og á 14
ára afmælinu, þegar Guðm. heit. Thorsteinson,
breytti Iðnó í íslenzkan helli, sem tröll og forynjur
skygndust inn í og liðu fyrir utan. Sá hellir hefði
átt að vera umgerð um minningarsýningu Guðm.
heit. síðastliðið haust, svo fallegur og ramíslenzkur
var hann.
Næstu 3 kvöld hafði fél. íþróttavökur í Iðnó.
Set eg hér dagskrár kvöldanna svo að lesendur
íþróttablaðsins geti séð hvað fram fór, þótt ekki
sé hægt að sýna eða láta heyra, hvernig það var:
Sunnudaginn 13. marz kl. 8]l2:
1. Dr. Guðm. Finnbogason: Nokkur orð.
2. Fimleikasýning I. fl. kvenna, undir stjórn Björns
]akobssonar.
3. Séra Friðrik Hallgríksson: Kirkjan og íþróttir.
4. íslenzk glíma: 8 menn frá Glímufél. »Ármann«.
5. Ásta Norðmann og L. Möller sýna dans.
Mánudaginn 14. marz, kl. 81/2:
1. Ruth Hanson: Sólódans (Fagnaðarvals).
2. Rigmor Hanson: Sólódans (Spánskur dans).
3. Ruth Hanson: Barnaleikfimi.
4. ]ón Ófeigsson: íþróttir og skólar.
5. Hnefaleikar: 4 menn frá Glímufél. »Ármann«.
6. Reidar Sörensen: Kylfusveiflur.
7. Ruth Hanson: Kvenleikfimi.
Þriðjudaginn 15. marz, kl. SV2:
1. Fimleikasýning stúlkna (II. fl.), undir stjórn
Steindórs Björnssonar.
2. Gunnl. Claessen: Iþróttir og læknisfræðin.
3. ]ón Þorsteinsson: Mullersæfingar.
4. Ruth Hanson: »Plastik«.
5. Fimleikasýning I. fl. karla, undir stjórn Björns
]akobssonar.