Íþróttablaðið - 01.03.1927, Qupperneq 21
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
29
hann upp nokkur heillaskeyti, sem Sambandsstjórn-
inni höfðu borist. Þá skýrði hann enn frá því, að
í. S. í. hefði verið gefinn vandaður silfurbikar, er
vera skyldi verðlaun í einmenningsfimleikakeppni.
Er nú hér í blaðinu auglýst keppni um hann í
vor. Sami maður gaf í. S. í. fjórþrautarbikarinn á
10 ára afmæli þess. Þakkaði forseti þessum góða,
ónafngreinda styrktarmanni fyrir gjafirnar og fund-
armönnum fyrir komuna og þátttöku í fundinum.
Fundurinn stóð til kl. 12 og sóttu hann um 200
manns.
Síðan hefir birst grein eftir Axel Sveinsson, ung-
an verkfræðing, í Lesbók Morgunblaðsins, þar sem
hann leggur til að Sundhöllin verði bygð niðri í
Rauðarárvíkinni, hafðar að eins tvær innilaugar, en
ein stór útilaug sunnan undir húsinu, og sjórinn
fram undan gerður hreinni en hann er; með því
að losa hann þar við saurírennsli þau, sem nú
liggja þangað, svo að menn geti farið í sjó, er
þeir vilja og hafa ástæðu til. Að til upphitunar,
bæði laugarinnar og þeirra húsa, sem á að hita
upp með aðfluttu heitu vatni, verði notað Gvendar-
brunna-vatn, sem leitt sé í gegn um og hitað í
þar til gerðum hitunarútbúnaði við laugarnar. Við
það sparaðist drifkraftur til að knýja vatnið til bæj-
arins og leiðslupípurnar væru losaðar við eyði-
leggingarhættuna, sem þeim stafar af steinefnum í
hveravatninu.
Þessi tillaga virðist að öllu leyti betri en hin
fyrhugsaða, og ætti að geta létt undir með því, að
verk þetta kæmist enn fyr í framkvæmd.
Glímumót.
Skjaidarglíma Ármanns
var háð 1. febr. síðastliðinn, fyrir fullu húsi áhorf-
enda.
Þessir kepptu, með viðgreindum árangri:
1. Jörgen Þorbergsson 10 + 2 vinn.
2. Þorsteinn Kristjánsson 10+1 —
3. Ágúst Jónsson 10 +- 0 —
4. Björgvin Jónsson 9
C3£3C3£3!3£3C3£3C3C3C3£3C3£3£3C3C3£3C3C3£3t3C3C3C3ÖC3£3C5í3ÖC3ÖC3£3C3
I °
£3 Kaupbætir C3
£3 . o
ö Enn er dálítið til af gamla Þróíti og 1. árg. Iþrótta- O
(3 blaðsins. Vantar þó orðið í hvorttveggja. Nýir og £j
^ gamlir kaupendur, sem vilja, geta fengið það sem til ^
Ö er af hvorutveggja blaðinu fyrir 2 kr. meðan upplagið ö
£3 endist. Andvirði sendist með pöntun; ntá vera í óbrúk- £3
^ uðum frímerkjum. ^
Ö£3£3£3C3C3£3C3£3C3£3€3C3£3£3£3C?C3C3C3C3C3£3C3£3C3C3£3C3C3C3C3£3C3£30
5. Eggert Kristjánsson 9 —
6. Gestur Guðmundsson 7 —
7. Helgi Thorarensen 7 —
8. Aðalsteinn Hallsson 4 —
9. Ingólfur Guðmundsson 4 —
10. Ragnar Kristinsson 4 —
11. Gunnar Magnússon 2 —
12. Árni Pálsson 1 — ■
13. Sveinn Marteinsson 1 —
Þá sérstaklega gleðilegu framför sýndi kapp-
glíma þessi, að þrátt fyrir kappið voru flestar glím-
]örgen Þorbergsson.
urnar meira og minna fallegar og snarpar og að
langflestir glímumennirnir sýndu það greinilega, að
þeir vöruðust að níða niður mótstöðumanninn á