Íþróttablaðið - 01.03.1927, Síða 27
IÞROTTABLAÐIÐ
35
Ýmislegt.
Fimleikareglur í. S. í. voru birtar í síðasta
síðasta blaði. En bar hafði við umbrot í blaðið
fallið úr 5. liðurinn í »Sérstök ákvæði«. Hann
hljóðar þannig:
Einkunnir eru frá 0—10, án brota. Hver deild
leikrauna hefir ákveðið gildi, og einkunnir marg-
faldaðar með því. Að því loknu eru einkunnirnar
lagðar saman.
I New-York kepptu kappar tveir fvrir skömmu
á ísi á 50 yards spretti. Var annar skautamaður,
en hinn hlaupari. Úrslitin urðu þau að hlauparinn
vann sigur á 5,8 sek.; varð skautamaðurinn 15
sm. á eftir honum. Auðvitað var hlauparinn á
gaddaskóm.
„Það er viðurkent að tóbaksnautnin stendur
í nánara sambandi við áfengisnautn, léttúð og af-
brot unglinganna en flestir foreldrar og uppeldis-
fræðingar trúa. Sá, sem vill berjast á móti einu af
þessu, en ekki öðru, er skammsýnn.
Dr. Wret/ing.
»Fordæmið freistar og kennir«, munið það!
Hnefleikar voru nýlega háðir milli Svía og
Norðmanna. Unnu Svíar í 5 þyngdarflokkum en
Norðmenn í þremur. Hvorug þjóðin á góða áhuga-
menn í hnefleik, því beztu menn hvorrar þjóðar-
innar um sig, Norðmaðurinn Otto van Porat og
Svíinn Harry Persson eru báðir farnir til Ameríku
og hafa gerst atvinnumenn þar. Munu Danir hafa
jafnbezta hnefleikamenn Norðurlandaþjóðanna.
Oslo Turnforening hélt nýlega alþjóða kapp-
mót í leikfimi. Fyrstu verðlaun voru dæmd finsk-
um manni, Jaakko Kunnas, 2. verðl. Helge Svar-
stad, 3. verðl. Franz Eibens frá Belgíu en fjórðu
Reiðari Tönsberg, sem íslenzkum íþróttamönnum
er kunnur frá veru hans hér.
„Maðurinn". í norsku blaði er þess getið að
nú í febrúar—marz hafi Rauði krossinn í Noregi
sýningu á mannslíkamanum. Er sagt að »allstaðar
þar sem »Maðurinn« hefir verið sýndur, hefir að-
sóknin verið feykileg. Þannig skoðuðu 70 þús.
manns »Manninn« í Stockhólmi, og 1 miljón í
Vínarborg*.
Hér er mynd af sýningarauglýsingunni. Þar er
auðsjáanlega ekki gert ráð fyrir að konan sé
»sem afrakað stóðtryppi á vordegi«. Því að konan,
seni á myndinni er sýnd, gæti komið fram því
nær eins og Aslaug Sigurðardóftir Fáfnisbana,
klædd í sitt fegursta skrúð og þó klæðlaus.
Gæti Rauði krossinn íslenzki ekki fengið »Mann-
inn« til sýningar hér? Það mundi geta eflt mjög heil-
brigðisþekkingu manna, eftir því sem sagt er um
þessa sýningu í Osló, bæði í þessu blaði og eins
í nýkomnu einkabréfi, sem getur um sýningu þessa.
Kriegsmann íþróftakennari, sem í nokkur ár
hefir verið þjálfari norskra íþróttamanna, hefir ný-
verið sagt upp stöðu sinni og er farinn úr landi.
Var hann talinn afburða góður kennari og fræg-
asti íþróttamaður Norðmanna; Charles Hoff, telur
gengi sitt honum að þakka. Hafa Norðmenn nú
fengið nýjan kennara, Silferstrand, og fer mikið
orð af honum. Hvenær fá íslendingar þá kennara,
sem geta gert úr þeim afreksmenn í íþróttum?
Olympiuleikarnir næstu verða haldnir í
Amsterdam 1928. Stjórn í. S. í. hefir nýl. borist
svarbréf frá Alþjóða-Olympíuneíndinni (C. I. 0.)