Íþróttablaðið - 01.03.1927, Side 28

Íþróttablaðið - 01.03.1927, Side 28
36 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ ooooooaoaoaooaaaooooaoocíooooaoofiíottoo o o o o o o O tölublöð. s O o Iþróttablaðið kemur út fyrst um sinn annan hvern mánuð — alls 12 Argangurinn lrostar 3 krónur. — Góðir, áhugasamir lítsölumenn óskast. Sölulaun 20% af minst 5 einlökum. 25% af 30 eint. og þar yfir. Ritstjórn, afgreiðslu og innheimtu annast Steindór Björnsson, frá Gröf, Greltisgötn 10. Gjaiddagi blaðsins er I. júlí. — Utanáskrifl er: íþróttablaðið, Pósthólf 516, Reykjavík. O o o o o o o 000000000000000000000000000000000000 o o o o o o o o um sjálfstæða þáfttöku ísl. á leikunum. Segir nefndin að sér sé sérstök ánægja að sjá Islend- inga taka þátt í leikunum sem fullvalda þjóð. Kveður líún framkvæmdanefnd næstu Olympíuleika munu á sínum tíma senda I. S. I. boð um þátt- töku í leikunum. Glíman okkar getur þó enn ekki komist inn á leikana, sem kapp-íþrótt, því að niinst 6 þjóðir þarf til að keppa í hverri íþróttagrein á Olympíuleikunum. Hinsvegar er ekki ómögulegt, að hún komist að sem sýningaríþrótt eins og í London 1908 og Stokkhólmi 1912. Það er þó ekki víst, því að nefndin má að eins hafa ákveðna tölu slíkra íþrótta á leikunum. Nú er hlutverk íþróttamannanna okkar að búa sig nógu vel undir að geta tekið þátt í leikunum. Af góðum gh'mumönnum eigum við nógu marga til, þeir þurfa að eins að æfa jafnt og þétt og lifa íþróttamannalífi engu síður en hinir, sem fram vilja sækja. Þá eru að eins eftir fjárhagsörðugleikarnir. Þar vonum við að Alþingi hlaupi undir baggann, sam- kvæmt umsókn I. S. I., sem nú er fyrir Alþingi, þrátt fyrir það að í mörg horn er að líta. En það, að koma fram sem sjálfstæð þjóð á Olympíuleikunum — og ekki sízt, ef keppendur hennar ná fram í fremstu raðir — er mjög mikils um vert fyrir land og þjóð í heild sinni, og hefir mikið að segja um íþróttahlutann af 1000 ára Al- þingishátíðinni 1930. Íslandsglímuna í ár á Glímufél. Ármann að sjá um. Verður hún hér í Rvík 22. júní í sumar, samkv. auglýsingu hér í blaðinu. íþróttafélög landsins ættu að kappkosta að senda þangað sína fegurstu, beztu og færustu glímumenn. Er það ekki skammlaust fyrir okkur, hversu fáir glímumenn. og þeir nær eingöngu hér úr Rvik, hafa sótt þetta eina og merkasta glímumót landsins. Aðalfundur í. S. í. verður haldinn hér í Rvík 26. júní í ár, samkv. auglýsingu hér í blaðinu. Skatt hafa þessi félög sent síðan síðasta blað kom út: U. M. F. »Dagsbrún«, Landeyjum, f. ’24, 10 kr. Knattspyrnufél. »Valur«, Rvík, f. ’26 og ’27, 30 kr. U. M. F. »Efling«, Reykjadal, f. ’26, 10 kr. U. M. F. »Árvakur«, ísaf., f. ’25, 10 kr. Iþróttafél. »Höfrungur«, Þingeyri, f. ’26, 10 kr. U. M. F. Eyrarbakka, f. ’27, 20 kr. (almælisgjöf). U. M. F. Svarfdæla, f. ’26 og ’27, 20 kr. U. M. F. Mývetninga, f. ’27, 10 kr. íþróttafél. »Hörður Hólmverji«, f. ’25 og ’26, 20 kr. (leyst upp). íþróttafél. »Stefnir«, Súgandafirði, f. ’26 og ’27, 20 kr. U. M. F. »AfíureIding«, Mosf., f. ’26 og ’27, 20 kr. U. M. F. »Egill rauði«, Norðf., f. ’24—’26, 20 kr. Glímufél. »Ármann«, Rvík, f. 27, 20 kr. Ársskýrslueyðublöð hefir stjórn í. S. í. sent öllum félögum, sem á skrá sambandsins standa, ásamt tilmælum um að senda þau sem fyrst útfylt til baka og skatt. Vonandi svara þau sem allra flest og lála bæði í því efni og öllum öðrum sjá, að þau séu vel lifandi. — »Nú er annað hvort að duga eða drepast«. Tillögurnar frá afmælisfundinum 28. jan. síðastliðinn, hefir stjórn I. S. I. sent bæjarstjórn Reykjavíkur ásamt erindi um nauðsyn þess, að koma hér upp sundhöll, sem fyrst. Einnig hefir hún sent Alþingi þær með beiðni urn fjárveitingu til sundhallarinnar á tveim næstu fjárhagsárum, sínar 50 búsundirnar hvort árið, á móti bæjarstjórn Reykjavíkur, sem að auki mun leggja Sundhöllinni ókeypis lóð. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Steindór Björnsson. Prenlsmiðjan Gutenberg.

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.