Eining - 01.12.1963, Síða 5

Eining - 01.12.1963, Síða 5
EINI NG 5 X( oot 1/ SUMARMÁL Ritstjórn blaósiðunnar: GuOmundur I>6rarinsson og Einar Hannesson. Þýzk-norrænt jbing í Þýzkalandi Æskulýðssambandið Schleswig-Hol- stein hefur mikirm áhuga á samstarfi við æskufólk á NorðurlöncLum. Árið 1961 bauð það t.d. hóg íslenzkra æsku- lýðsleiðtoga til sín, til kynningar á æskulýðsstarfi. Síðastliðið sumar kom svo hópur frá þeim til kynningar á landinu. Nú að þessu sirmi bauð það 3 fulltrúum frá hverju Norðurlcmd- anna til kynningar um æskulýðsmál, auk þess sem boðinu fylgdi kynnis- ferð til Berlínar. Undirritaður átti þess kost að sitja þetta þing og þykir hlýða að kynna það örlítið. Svíar atliafnasamir. Sænska sambandið hafði tvímælalaust ver- ið athafnasamast. Það hefði veitt veigamkla aöstoð vanþróuðu löndunum, svo sem Kongó, Tang’anika, Ethíópíu o.fl. Æskufólk á aldrin- um 20—30 ára, sem sérstaklega var þjálfað og reynt í æskulýðsmenningar og félagsmál- um og starfi Iiafði verið sent til þessara landa til hjálpar, upplýsingar og uppbygg- ingar. Þingið var sett í húsi samtakanna í IMözen af fonnanni þess Gunther Martens kvöldið 9. október. Hann kynnti fyrirkomulag þess og óskaði nánara samstarfs við Norðurlöndin, þessar óskir sínar ítrekaði liann við opinber- ar móttökur í Kiel og Berlín. Eftir þaS kynntu fulltrúar sig og félag sitt. Nassta dag var kynningum enn haldið áfram og fulltrú- amir greindu frá félagsstarfi æskulýðssam- bandanna. Öll liöfðu þau unnið vel, livert á sinn liátt, þó augljóst væri að æskulýðsstarfi Islands væri ekki sá sómi sýndur af ríki og héruðum, sem æskulýðsstarfi hinna landanna, sem veita vervilegan stuðning. Verkefni Evrópuráðs, ceskulýð'sheimssam- bandsins W A Y. Á þessu þingi var rætt um verkefni og framtíðaráætlanir Evrópuráðs æskulýðssam- takanna. Formaðurinn H. G. Binder, lag’ði sérstaka áherzlu á kynningu æskulýðsleið- toga hinna ýmsu landa, sem skiptust á um reynslu og starfsaðferðir og kæmu á fram- færi hverju því nýju sem fram kæmi og til heilla horfði. Grundvöllur samstarfsins yrði að byggjast á gagnkvæmri vináttu og skiln- ingi og fyrir þeim ættu öll sérhagsmuna og tortryggnis sjónarmið að víkja. A þessu þingi skiptust á fyrirlestrar og sam- töl. Rætt var um samstöðu og tengsl liinna eldri við þá yngri og hve oft væri um tak- markaðan skilning að ræða þeirra í milli, um áhrif menningartækja nútímans svo sem blaða, sjónvarps og útvarps, á uppeldi æsk- unnar. um þáttöku ungs fólks í félagslífi og stjórnmálmn, hvenær það hefði þroska til stjómmálalegrar þátttöku o.íl. Kynnisferðir. Inn á milli fyrirlestranna var komið á kynnisferðum og þó sérstaklega viðvíkjandi farfuglaheimilum. Farfuglaheimili Þjóðverja eru rekin af hinum mesta myndarbrag. Oft og tíðum skipulögð af æskulýðssamtökum og rekin jöfnum höndmn sem gistiheimili og dvalarstaðir fyrir alls konar æskulýðsnáms- skeið og skólaferðalög, sum hafa herbergi til dægradvala, tómstunda og' íþróttaiðkana, svo sem hið glæsilega heimili í Travemunde og undantekningarlaust fylgja þeim ágætir borð- salir, setustofur, mörg liafa tjaldstæði og alls konar fyrirgreiðslu með mat og annað er ferðafólk vanhagar um. Glæslegast þeirra heimila sem ég sá, var farfuglaheimilið í Kiel, sem miklu fremur má líkja við fullkom- ið hótel. Æskulýðsheimilið í Bad-Segeberg var og mjög athyglisvert með herbergjum til tómstunda- og íþróttaiðkana, útvarpi og seg- ulbandi og flestu því er laðar æskuna til sín. Við vorum í opinberu boði landstjórnar- innar í Kiel og var sýnt ráðhúsið og skipa- skurðurinn mikli, fleira mætti víst til tína, svo sem leikhúsferð til Hamborgar, þar sem okkur var sýnd „My fair lady.“ Ferð til Berlínar. Að síðustu kemur svo. boðið til Berlínar. Þar sátum við opinbert boð Berlínaborgar, með ávörpum og kynningum. þar á meðal um hina erfiðu aðstöðu borgarinnar vegna skiptingar austurs og vesturs, en þau mál eru öllum kunn. Okkui' voru sýndar margar merkisbyggingar V- Berlínar og hinn mikli múr er aðskilur borgarhluta. Mest fannst mér til um faríuglaheimilið í Klukkustræti 3 með 250 rúmum og' fullkomið á allan máta. Við komumst meira að segja til A-Berlínar og lituðumst þar nokkuð um. Síðasta daginn var rætt um tilgang og ár- angur fararinnar, auk samstarf milli Æskul. Sch.-H og Norðurlandanna. Þinginu lauk svo með þökkum fyrir kynningu og góða samveru og samskipti. Dvölin hafði áreiðanlega orðið að mörgu leyti til fróðleiks og gagns. Guðm. Þórarinsson. -K -K * Þetta er liið mikla farfuglaheimili í Klukkustrœti 3 í Berlín. Það rúmar 250 manns. Þar er glœsilegur borðsalur og setustofur. Fjög- ur til sex rúm eru í liverju lierbergi og fylgja þeim flest þœgindi. Æskulýðsheimilið „Haus Bothfos“ í Mözen. Þar er hentug aðstaða fyrir 20-30 manna námskeið eðaþing.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.