Eining - 01.12.1963, Blaðsíða 9
EINI NG
9
sjúkrahúsanna, ólaunaðir vclgerðarmenn bæjar- eða sveit-
arfélagsins, nágranninn, sem býðst til að gæta barna þinna
á meðan þú ert að flytja inn í nýja íbúð eða hús. Þettafólk
ætlast ekki til neinna launa né gerir þetta í neinum sér-
stökum tilgangi. Það er aðeins umhyggja, sem stjórnar
gerðum þess, og þjónusta þess — margföldið milljón sinn-
um — er aftur sá máttur sem þokar mannkyninu upp hina
grýttu leið þróunnarinnar frá villimennskunni.
Þótt þetta fólk ætlist ekki til að verkum þeirra sé gaum-
ur gefinn og kjósi það helzt, fær það þó stundum endurgjald
verka sinna. Áreiðanlega kom dr. Frances Oldham Kelsey,
í þjónustu matvöru og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, ekki
nein frægð til hugar, er hún stóð 14 mánuði óbifanlega
gegn kröfu lyfjastofnunar, sem vildi fá hana til að viður-
kenna nýtt lyf, sem fengið hafði nafnið thalidomide. Hún
var ekki viss um að það væri hættulaust, þótt það hefði þá
verið notað allmikið í Evrópu. Árangurinn varð sá, að þús-
undir mæðra í Ameríku komust hjá því að fæða af sér
vansköpuð börn — allt að þakka umhyggju einnar konu.
Hæfileikinn til umhyggju er okkur öllum gefinn, ogþað
er mest á valdi sjálfra okkar, hvort hann eflist eða þverr-
ar. Hann starfar ekki alltaf í okkur óhjákvæmilega. Að
þessu vék víst Sókrates, er hann sagði: „Áður en maður-
inn getur hreyft við heiminum, verður hann að hreyfa
sjálfan sig.“ Margir miklir listamenn hafa um langt skeið
keppt að því að verða viðurkenndir, áður en þeir lærðu að
elska verk sitt. Margur maðurinn hefur þurft að vinna
töluvert til vináttu, áður en hún hlotnaðist honum.
Bæði andúð og fordómar getur gert út af við umhyggj-
una. Eitt sinn sagði læknir nokkur frá ungum kaupsýslu-
manni, sem leitað hafði til hans vegna svefnleysis, tauga-
spennu og óværðar. Rannsókn leiddi ekki í ljós neinn sjúk-
leik, en þegar læknirinn spurði manninn um atvinnu hans,
svaraði hann ergilega: skóframleiðsla, hef andstyggð á
henni, bætti hann við. Hann hafði erft fyrirtækið eftir föð-
ur sinn og sat nú fastur með það.
Læknirinn ski’ifaði lyfávísun varðandi svefnleysið og
tók svo að rabba við manninn um sitt auka áhugamál —
fomaldasögu. Hann hafði lagt fyrir sig dálitla rannsókn
sögunnar varðandi klæðnað fólks, þar á meðal fótabúnað,
skógerðina. Framleiddu Egyptar fyrstir manna sandali eða
voru það Assýríumenn? Ef til vill vissi sjúklingur hans
um einhvern fróðleik varðandi þetta.
Með hálfgerðum óvilja fór kaupsýslumaðurinn að eyða
stundum í bókasafninu, og hið langsótta læknisráð kom að
notum. Ofurlítil áhugaglæta var tendruð, sem smám sam-
an varð að áhugaeldi, og þetta breytti öllu lífi mannsins.
Hann lærði að hafa áhuga á starfi sínu.
Ein bezta leiðin til að auka umhyggju og áhuga, er að
láta í ljós tilfinningar sínar. Við, foreldrar erum stundum
of fljót á okkur að grípa fram í fyrir börnum olckar. „Hæg-
an, hægan,“ segjum við stundum, „láttu ekki tilfinningar
þínar fara með þig í gönur.“ Oft er ákafi barnsins aðeins
útbrot áhuga og umhyggju, og ef við þöggum of hranalega
niður í þeim, getur það skaðað hæfileika barnsins til um-
hyggju og áhuga.
Kvöld eitt sátum við, litla dóttir mín og ég og horfðum
á aðfallið. Kvöldið var kyrrt og yndislegt. Þunnar sjávar-
öldurnar féllu eins og brætt gull inn yfir sandinn, stöðugt
nær og nær okkur. Allt í einu umvafði sjórinn líkt og mild-
ur faðmur, allt fjöruborðið. Þá sagði dóttir mín, eins og í
leiðslu, er ekki yndislegt hversu sjórinn umvefur landið.“
Þetta var rétt ályktað samkvæmt hinni barnslegu og
^Jleilöcj jól.
Heilög, heilög, heilög Ijóssins hátíö Ijómar,
loga blysin skæru um gervallt jarðarból.
Fagni allur lýður frelsun Guös á jörðu,
fögnuður ríki um drottins heilög jól.
Heilög, heilög, heilög, öllum stundum æöri,
engla og manna hátíð um jörö og sólnageim.
Gleöjist jörö og himnar, — guösriki á jöröu
Guö lætur sigra um drottins víöa heim.
Heilög, heilög, heilög, Ijóma jatan lága,
lýstu öllum þjóöum til Guös frá allri synd.
Ljóma ofar öllu, eins í hjörtum manna,
alheim þín lýsi heilög dýröa'rmynd.
Pétur Sigurösson.
óbrigðulu skynjun. Hún sá þama eins konar umhyggju.
Landið var hinn óvirki aðili, aðeins beið. En sjórinn átti
áhuga og þess vegna kom hann. Lærdóminn mátti fá þama
í þessu fagra tákni: viljan til athafna, til að gefa sig fram,
til að fórna sér og ná í sjálfsfórninni sjálfri lífsfylling-
unni.
Grein þessi er þýdd er Reader’s Digest.