Eining - 01.08.1964, Síða 13

Eining - 01.08.1964, Síða 13
EINI NG 13 SOMARMÁL Ritstjórn btaösiðunnar: Guðmundur I>órarinsson og Einar Hannesson. Saxenborgarmótið 1964 S. G. U. hi'ð öfluga og áhugasama sænska ungtemplarasamband bauð U5 þátttakendum frá öllum Norðurlöndun- um til vikudvalar að Saxenborg í Döl- unum dagana 31. 5. til 6. 6. Ekki gátu þó nema 36 þátttakendur sótt þetta mót og var ég eini íslend- ingurinn af 5 sem máttu koma. Þetta höfðinglega boð fól í sér auk fæðis og húsnæðis í viku, greiðslu á ferðakostn- aði innan Svíþjóðar og nokkrar ferðir um nágrennið. — Svo höfðinglegir eru Svíarnir og svo mikið gera þeir fyrir norrænt samstarf í bindindismálum æskunnar. Þetta mót var fyrst og fremst hugs- að til kynningar og hvatningar. Saxen- borg er yndislegur staður með fallegt vatn umvafið fögrum skógi. Hér skyldu gestir njóta fegurðar og hvíldar, en jafnframt skyldi þeim kynnt ýms vandamál nútímans og þó sérstaklega staða Norðurlandanna meðal Evrópu- landa, samstaða þeirra og samvinna. Voru þessi mál rædd og reifuð af kunn- um mönnum. Einnig voru þarna erindi um bindindismál. Margt var þarna vel sagt, en mér urðu minnisstæðastir þeir, Sven Elmgren úr stórstúkunni sænsku og Arvid Johnsen, foringi ungtemplara 1 Noregi með sinn brennandi áhuga á hjálp og stuðningi við hin vanþróuðu lönd. Margt hafa bindindismenn stór- vel gert, svo sem í Kenia og Tanganika og byrjað brautryðjendastarf í Japan og Indlandi. í Grikklandi hefur verið komið upp miklu höfuðvígi bindindis- manna. Arvid Johnsen var með stór- fróðlegt erindi um bindindismál á Norðurlöndum og baráttu norskra ung- templara í bindindismálum. Á þessu móti var mjög rætt um samvinnu nor- rænna ungtemplara. — í því sambandi varð samnorræna ungtemplaramótið, sem á að verða á íslandi 1966 mjög til umræðu og mikill áhugi hjá norrænum ungtemplurum að fjölmenna þangað. Ég sýndi þarna mjög góðar litskugga- myndir frá íslandi og kynnti það nokk- uð. Virtist vera mjög mikill áhugi fyr- ir landinu. Kvöldin voru með léttu og skemmti- legu dagskrárefni, sem ýmist var að- fengið eða heimatilbúið, þarna voru leikir, söngur, gamanvísur og dans. — Kvöldvökur voru þó aldrei lengur en til kl. 11 e.h. nema síðasta kvöldið. Ég var sérstaklega hrifinn af þeim þrótti og áhuga, sem einkenndi norsku fulltrúana, frá þeim stafaði örfandi kraftur. Margir fyrirmenn og leiðtog- ar sænskra ungtemplara voru þarna til að auka á stemninguna, má þar nefna Henry Sörman og Ingimar Berg, en þó síðast en ekki sízt höfuðstjórnanda mótsins Sune Persson, sem glaður og reifur hvatti þátttakendur til umræðna og lagði sína björtu trú og lífsskoðun til hvers máls, svo hann var hvers manns hugljúfi og þó ákveðinn og ein- arður í allri sinni stjórn. Það sem ég saknaði var íslenzkrafé- laga, sem áreiðanlega hefðu sótt þang- að kraft og hvatningu við að komast í samband við lífsglaða, góða félaga og jafnaldra með sömu sjónarmiðum. Ég veit að þetta mót styrkti sam- stöðu og samstarfsvilja, það vakti á- huga og gaf dýpri skilning á þýðingu bindindismálsins fyrir norrænt æsku- fólk, og síðast en ekki sízt var það kynning og hvatning góðra félaga frá ólíkum stöðum með hin sömu sjónar- mið til virkrar baráttu gegn einu mesta vandamáli allra tíma og allra landa, áfengisvandamálinu. Guðm. Þórarinsson. Góðir gestir. Auk Henry Sörman voru liér á ferð tveir forustumenn ungtemplara í Fœr- eyjum og Noregi, en það voru þeir Jakob Lindenskov og Thorbjörn Martinsen. Myndin er tekin í Hagaslcólanum, er nokkrir ungtempl- arar ræddu mótið ’66. Talið frá vinstri:. . . . Henry Sörman, Sví- þjóð, Einar Hannes- son, Beykjavík, J ó- liann Larsen, Hafn- arfirði, Jakob Lind- enskov, Fœreyjum, Torbjörn Martinsen, Noregi og Sigurður Jörgensson, Beykja- vík. Ilenry Sörman. Frá bindindis- og umferðarmálasýningunni,

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.