Nýtt og gamalt - 01.01.1914, Side 63
61
Það er engin ástæða fyrir trúna,
að leggja á flótta, þótt einhverjir
hrópi, að nú stefni vísindin rakleitt
gegn henni. Trúnni er alveg óhætt
að bíða átekta og sjá hvort vísinda-
nafnið er annað en auglýsingaskrum
imyndunaraflsins, sem stundum fiýgur
geyst með miklum vængjaþyt, en er
trúnni skaðlítið, nema þegar það hittir
hana á flótta.
Sjeu á hinn bóginn sönn vísindi á
ferð, er engin ástæöa fyrir trúna, að
gripa til vopna, því annaðhvort er
þá starfsvið þeirra alveg óháð starf-
sviði trúarinnar, svo sem er t. d.
um stærðfræði og eðlisfræði, eða þau
geta unnið í bróðerni og stuðst inn-
byrðis, svo sem er t. d. um allar
gætnar og sannvísindalegar biblíu-
rannsóknir. Það mun jafnan vera
af ógætni eða óþarflegri tortrygni
öðru hvoru megin eða beggja megin
þegar sönn vísindi og kristindómur
lenda í deilum innbyrðis.
------„En er þá óhætt nú sem
fyr að treysta því að nýja testa-
mentið sje áreiðanlegt, þar sem svo
mikill orðamunur er í elstu heimild-
um að því ?“
Sennilega spyr einhver athugull
lesari svo þegar hjer er komið. —
Já, óhætt er það yfirleitt, þvi að ekki
er það nema örlítill hluti af efni
n. testam. sem vafi er um vegna ó-