Vera - 01.06.1985, Page 10
Ljósmynd: M. Andersson
,,Konur eru betur fallnar
en karlar til að stofna eigið
fyrirtæki, konum er framtaks-
semi og hagsýni í blóð borin".
Svo mælir sænsk kona, Eva
nokkur Sternberg. Hún ferð-
ast um Svíþjóð og heldur fyr-
irlestra til að kenna konum að
„stofna eigið. . .“
Kvennahreyfing morgun-
dagsins, spurði ég sjálfa mig er
ég las viðtal við hana í blaðinu
í dag? Eða kannski bara sú
fyrsta til að klæða í orð mark-
mið hreyfingar sem þegar er
orðin til, farin að starfa leynt og
Ijóst — með góðum meðbyr —
hvort sem okkur líkar betur eða
verr? Hún varð mér ærið um-
hugsunarefni. Hvert er eigin-
lega markmið baráttunnar?
Þetta finnst mér holl spurning
fyrir kvenfrelsiskonur að velta
fyrir sér. Ekki bara af því að
nýja kvennahreyfingin s.k. er
nú orðin að u.þ.b. 15 ára óstýri-
látum táningi með innri orku
sem erfitt er að halda í skefjum,
hefta og kúga (sbr. öll birting-
arform kvennabaráttunnar).
Heldur líka af því að nútíma-
samfélag er það flókið, marg-
slungið og ,,opið“ að oft er
erfitt að meta hér og nú þau
fyrirbæri sem þjóta framhjá
okkur í samfélagi sem undir-
orpið er lögmáli hraðans. Ein-
mitt þess vegna er mikilvægt
að staldra við — hlutir þurfa
ekki endilega að hafa fengið á
sig sögulega fjarlægð til að
skoðast í samhengi.
Konur geta — konur kunna
Kannski er þaö tímanna tákn
að sænskar konur héldu vöru-
og hugmyndasýningu í Gauta-
borg í fyrravor. „Kvinnor kan“
var yfirskriftin á þessari heljar-
innar uppákomu sem stóð í 4
daga í byrjun maí. Og það er
sannarlega mikið sem sænsk-
ar konur kunna og geta, um
það efast enginn. Þarna gat að
líta bása með allt frá handverki
kvenna, keramík, vefnaði,
prjóna- og saumaskap, alls
slags listiðn og list, til smárra
og stórra framleiðslufyrir-
tækja, miðstöð fyrir viðskipta-