Vera - 01.06.1985, Qupperneq 13

Vera - 01.06.1985, Qupperneq 13
Astrid Lindgren veröur ekki sett á bás og jafnvel það aö hún sé barnabókahöfundur er dálítið í lausu lofti, þaö vitum viö sem höldum áfram að lesa bækur hennar löngu eftir aö börnin okkar eru sofnuð. Fyrir hverja skrifar hún? ,,Ég skrifa fyrir sjálfa mig. Þegar ég skrifa hugsa ég aldrei um lesendurna. Ég hef þörf fyrir að skrifa, og það eina sem ég hef þáíhöfðinuerhún litla Astrid í mérsjálfri. Ég reyniaðskrifa sögur sem henni mundi líka að lesa. Að öðru leyti reyni ég ekki að gera neinum til hæfis." Aö skrifa fyrir sjálfa sig, þýðir þó ekki að henni sé sama um álit lesenda sinna, þvert á móti. Hún segir með gleöi frá öllum þeim bréfum sem hún fær frá fjölda landa. Jafn ánægð er húm þó ekki með álit gagnrýnenda og bókmenntafræðinga. Hún hniklar brýrnar þegar hún talar um þá, því margt af því sem þeir hafa sagt er henni framandi, t.d. að í bókum hennar sé að finna ofurmennadýrkun, siðleysi og foreldrahatur. „Víst er hægt að túlka bækur, en það er hættulegt að oftúlka þær. Oft hefur mérveriðsagt hvað bækur mínar þýðaog hvað þær túlka. Það getur gert mig vitlausa. Börn verða að fá tæki- færi til að upplifa við lestur eins og hinir fullorðnu.“ En verða ekki börn fyrir áhrifum af því sem þau lesa? „Jú það verða þau svo sannarlega, eða eins og Graham Greene orðaði það einu sinni — það sem maður les sem barn hefur meiri áhrif á mann en allt félagslegt og trúarlegt uppeldi sem maður verður fyrir síðar. En það er hægt að skrifa á marga vegu. Það er t.d. talað um að gera börn félagslega meðvituð. Það þýðir að strax í vöggu er byrjað að mata barnið á því hvað heimurinn sé slæmur. Á þessa aðferð trúi ég alls ekki. Að fá að vita allt um það slæma án þess að geta gert neitt í málinu er hræðilegt. Börn hafaekki þroskatil að ráða viðþað. Nei börn þarfnast undirstöðuöryggis til þess að lifa eðlilegu lífi, og þau verða að geta trúað því að veröldin sé dásamleg og á köflum afar dásamleg. Það má ekki vera hlutverk rithöfunda aö hræða börn.“ Það er oft dásamlegt að lifa í bókum þínum, en þar er líka að finna það vonda, dauöann og hræðslu? „Dauðinn er staðreynd, einnig í huga barnsins. Ég hef skrif- að margar bækur og þær eru ólíkar, en í „Bróðir minn Ljóns- hjarta" hafa margir fengiö stuöning og huggun, einmitt vegna þess að þar er fjallað um dauðann. Börn hugsa oft um dauð- ann og mörg eru hrædd við hann. Foreldrar bregðast oft með því að tala ekki tæpitungulaust, með því t.d. að segja við deyj- andi barn sitt: Þú verður bráðum frískur. Þörfin fyrir að fá að lesa um dauðann er líka til staðar hjá börnum, en það sem maður verður aö muna er aö börn og fullorðnir lesa og skilja bækur á mismunandi hátt. Sem dæmi um þetta þá bauð hópur sálfræðinga mér til viðræðna vegna þess að þeir ætluðu að nota „Bróðir minn Ljónshjarta" í starfi. Einn þeirra var þó algerlega andvígur þv( vegna þess eins og hann orðaði það — hún endar svo illa. Um kvöldið sama dag hringir svo litil stúlka til mín og þakkar mér fyrir bókina og segir: — Þakka þér sér- staklega góða Astrid aö þú lést hana enda svona vel. Þetta er bara eitt af mörgum dæmum um það hversu ólíkt börn og full- orðnir upplifa mínar bækur." En hið vonda, kúgunin og annað í þeim dúr. . .? „Það vonda er líka staðreynd sem fylgir lífinu, en börn líkja sér alltaf viðþaðgóða.sem berst gegn hinu illa. Þanndagsem þau hætta því, já þá fyrst verður þaö alvarlega óhugnanlegt." Sumar af sögupersónum þínum eru þjakaðar af óttanum, hræðslunni og t.d. fer Ronja á allra hættulegustu staðina til þess að æfa sig í að vera ekki hrædd? „Börn hugsa svo rökrétt. Hvar annars staðar getur maður æft sig i að detta ekki í hættulega fljótið en einmitt á hálum steinum þess?“ Getur maður æft sig í að vera ekki hræddur, með því að lesa? „Já. Börn sækja hjálp og fyrirmyndir í bókmenntirnar, og ég hef einmitt fengið bréf um þetta. Japönsk stúlka skrifaöi mér og sagði að hún hefði losnað við hræðsluna með því að kynn- ast Línu.“ Lína, já, hún er ekki nein venjuleg stelpa og ekki heldur Ronja. Þeir hlutir sem stelpur gera vanalega ekki gera þær, hafa endaskipti á öllum hlutum og taka sjálfstæðar ákvarðan- ir. Afhverju eru þær stelpur en ekki strákar? „Lína, nafn hennar varð til á þeirri stundu sem dóttir mín bað mig um að segja sér frá henni. En aö hún og aðrar sögu- persónur mínar eru eins og þær eru stafar einfaldlega af því hvernig ég sjálf er og hugsa. Fyrsta kvenréttindakonan sagði Siri Derkert um Línu (Astrid segirfrá þeim atburði, sem áðurer greint hér frá án þess að sýna vanþóknun á þeirri túlkun), aðrir hafa sagt að hún sé engin bók heldur uppfinning, eins og stál- maðurinn og stálstrákurinn, það er nú dálítið ýkt. Augljóst er þó að stelpur þarfnast fleiri tækifæra og fyrirmynda en þær hafa. Ég elska bæði stráka og karla, en karlremban er fyrir hendi og karlasamfélagið reynir stöðugt að kúga konur og halda þeim niðri og það hefur skapað hefð sem einstaklingar eru ekki ábyrgir fyrir. Hlutur kvenna er verri og minni, þess vegna gleður það mig að vita að stelpur hafa fengið stuðning við lestur bóka minna." „Stelpur þarfnast fleiri tækifæra og fyrirmynda“ Myndin af eldri konum í bókum þinum er líka jákvæð. Kon- urnar eru skilningsbetri, eru á móti ofbeldi, finna ráð og stjórna miklu án ofstopa. „Já, þannig er það. Ég hef hugsað dálítið um þetta og víst er mamma Emils, Lovisa og Malin í Saltkrákunni fulltrúar hins jákvæða á meðan Matthias, Melker og pabbi Emils eru dálítið ruglaðir, öskra. Líkast til eru það móðureiginleikarnir sem valda þessu, og þetta eru að vísu gömul sannindi um konur og karla. Hlutverk konunnar hefur verið að varðveita líf á meðan karlarnir hafa verið í stríði eins lengi og veröldin hefur staðið. Ég trúi því að þetta hafi lagast ögn síðan Lína kom út. Það er meira af meðvituðum körlum i dag og móðureiginleikarnir hafa flutst dálítið yfir á þá og föðurtilfinningin yfir á konur. Ég vona stundum að Línu sé ekki þörf lengur, en. . .“ Vinnur þú meðvitað að því að draga upp svona mynd af kon- um? „Ég hef ekki sest niður og ákveðið að breyta einu eða neinu

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.