Vera - 01.06.1985, Side 29
Góöir fundarmenn!
Fundarstjórinn Birgir Árnason minntist hér áöan á
frétt sem lesin var í útvarpinu fyrir hálfum mánuöi og
sem snerti lítillega næstu borgarstjórnarkosningar.
Ekki ætla ég að gera þessa frétt aö sérstöku umtalsefni,
en áöur en lengra er haldið á þessum fundi vil ég undir-
strika þaö aö þessi frétt er bæöi mér og Kvennafram-
boðinu algerlega óviðkomandi. Ég vil jafnframt að þaö
komi skýrt fram að óg er ekki hingað komin til aö ræöa
næstu borgarstjórnarkosningar undir þeim formerkjum
sem gefin voru í fréttinni. Ég er ekki til viöræöu um neitt
slíkt.
Það sem ég er að öðru leyti tilbúin til aö ræöa hér er
yfirskrift þessa fundar, þ.e. „Borgarstjórnarkosningar
1986. Hvað gera félagshyggjuflokkarnir?“ Þessari
spurningu skal ég reyna aö svara eftir bestu getu og út
frá stöðu mála í dag en auðvitað meö þeim fyrirvara aö
margt getur gerst á einu ári.
Kvennaframboöiö er aöeins 3ja ára gömul samtök
sem uröu til vegna þess aö fjöldi kvenna taldi aö stefna
Þann 14. maís.l. varhaldinnfundurá
vegum Málfundafélags félagshyggjufólks
undir yfirskriftinni ,,Borgarstjórnar-
kosningar 1986. Hvað gera félagshyggju-
flokkarnir?" Samkvæmt fundarboði var
tilgangur fundarins að rœða um hvað
félagshyggjuflokkarnir í borgarstjórn
Reykjavíkur vœru sammála/ósammála
og hvaða möguleikar vœru á samvinnu
þeirra í nœstu borgarstjórnarkosningum.
Frummælandi á fundinum var Magnús
Ólafsson, ritstjóri NT, en auk bans héldu
stuttarframsögur Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttirfrá Kvennaframboðinu, Adda Bára
Sigfúsdóttir frá Alþýðubandalaginu,
Gerður Steinþórsdóttir frá Framsóknar-
flokknum og Sigurður E. Guðmundsson
frá Alþýðuflokknum.
Fréttaflutningur dagblaðanna af þess-
um fundi hefur allur verið mjög á einn veg,
þ. e. Kvennaframboðið sé helsti Þrándur í
Götu samvinnu milli félagshyggjuflokk-
anna, það sé alltaf að reyna að sanna til-
verurétt sinn og vilji vera sér á báti, for-
tíðarlaust ogfiekklaust. I blöðunum hefur
hins vegar farið fáum sögum af því hvað
fulltrúi Kvennaframboðsins á fundinum
sagði í sinni framsögu. Til að bæta úr
þessu skeytingaleysi birtir VERA ræðuna
hér í heild sinni svo útúrboruháttur
Kvennaframboðsins megi öllum /fós
verða!
En áður en lengra er haldið er rétt að
taka fram, að fréttin sem Ingibjörg Sólrún
minnist á í uþþhafi rœðu sinnar varþess
efnis, aðhaft var eftirSvani Kristjánssyni
að stjórn Málfundafélags félagshyggju-
fólks hefði rætt þá hugmynd að bjóða
fram einn listafélagshyggjufólks til nœstu
borgarstjórnarkosninga með Ingibjörgu
Sólrúnu ífyrsta sæti ogyrði hún þá jafn-
framt borgarstjóraefni listans. Fyrir
hönd stjórnar málfundafélagsins bar
Birgir Árnason þessa frétt til baka við
uþþhaf fundarins og sagði þessa hug-
mynd ekkifrá henni komna endafyrir ut-
an verksviö stjórnarinnar að fjalla um
slíka hluti.
Ljósmynd: Árni Bjarna
Vonir
og
kröfur
félagshyggjufólks