Vera - 01.06.1985, Qupperneq 33

Vera - 01.06.1985, Qupperneq 33
LEIKLIST Nemendaleikhúsið Fugl sem flaug á snúru Höfundur: Nína Björk Árnadóttir Leikarar: Alda Arnardóttir Barði Guðmundsson Einar Jón Briem Jakob Þór Einarsson Kolbrún Erna Pétursdóttir Rósa Guðný Þórsdóttir Þröstur Leó Gunnarsson Þór Tuliníus Lýsing: Grétar Reynisson og Ólafur Örn Thoroddsen Leikmynd og búningar: Grétar Revnisson Leikstjórn: Hallmar Sigurðsson Smíði og tæknivinna: Ólafur Örn Thoroddsen Saumar: Anna Jóna Jónsdóttir Ljósastjórn á sýningum: Skúli Rúnar Hilmarsson Ljósmyndun: Friðrik Friðriksson Þaö mun nú vera orðin hefð fyrir því að nemendur á síðasta ári í Leiklistarskóla ís- lands frumsýni nýtt íslenskt leikverk á síö- asta námsári sínu. Að þessu sinni skrifaði Nína Björk Árnadóttir leikrit sérstaklega handa þeim hópi sem nú kveöur skólann. „Fugl sem flaug á snúru“ heitir það og fjallar um ,,fólk sem finnur ástina, sem það er hrætt við að mega ekki rækta," eins og segir í handriti leikritsins sem gefiö hefur verið út í litlum bæklingi og hægt er að kaupa um leið og maður kaupir miðana. Það er ágætur siður. Þetta leikrit er langt frá því aö vera hefð- bundið að gerð, það skiptist í stórum drátt- um einungis í tvo þætti: fyrir hlé og eftir hlé, en innan þeirra eru svo í rauninni fjöl- margir þættir því allar persónurnar eru inni á sviðinu allan tímann og sjónarhorn skipt- ist á milli þeirra og athyglin beinist að þeim til skiptis allan tímann. Auk þess sem hver leikari fer með hlutverk fleiri en einnar persónu. NemaÞór — hannerungurmað- ur með rós allan tímann. Og það er ungi maðurinn með rósina sem tengir alla hina, því eins og segir einnig í upphafi handritsins finnur fólkið ástina ,,í ungum manni með rós“, sem hefur kastað nafni sínu og fortíð og neitar að þrífast við þær aðstæður sem eru. Hann hefur sem sagt sagt sig úr lögum við samfélagið, á sinn friðsamlega hátt og ógnar því kannski bara með því að ,,taka“ eina rós á dag og þurfa ekki á neinu öðru að halda. Og ungi maðurinn með rósina er hamingjusamur, virðist manni í fyrstu, eina persóna verksins sem er hamingju- söm. En síðar kemur í Ijós að hann er ekki sorglaus fremur en hinar: foreldrar hans dóu af of stórum heróínskammti í kjallara- Ljósmynd: Friðrik Friðriksson tröppum í einhverri stórborginni og þar fannst hann, auminginn litli. Og ,,þeir“ drápu ömmurnar hans báöar sem höföu sagt honum frá uppruna hans. Annar maður og öllu órómantískari í háttum, sá með möppurnar, bindur per- sónur þó kannski enn fastari böndum því hann er sásem hlustar. ,,Ég reyni að skilja og ég skrái niður það sem mér er sagt.“ Sem sagt sálfræöingur og fór út í námið af fræðilegum áhuga. Situr svo uppi varnar- laus gagnvart vandamálum sjálfs sín og annarra og á enga lausn. Fólkið í þessu leikriti á viö vandamál að stríða. Það er tilfinningalega kramið. Af drykkjuskap foreldra, ómanneskjulegum kröfum foreldra og jafnvel heróínneyslu foreldra og fannst mér þá frekar stefna í einhverjar hæðir ofar trúverðugleikanum. Og karlmennirnir eiga sérstaklega í vandræðum með tilfinningar sínar en flytja þau vandræði yfir á herðar konunum. Nema ,,sá vísi“. Hann ,,ræktar ástina á þann einfalda hátt, sem virkar broslega", — enn er vitnað í handrit — en hann er nokkuð óskemmdur enda átti hann góða móður sem ræktaði hann vel þótt faðirinn væri drykkjusjúklingur og sjálf gæfist hún upp gagnvart lífinu og listinni þegar drykkjumaðurinn hennar dó. Konurnar í þessu verki eru allar listakon- ur nema stúlkan í skápnum en hún er svo ung ennþá, stundar ástarsorgina sína og á eftiraðmarkasérleið. Hinareru listmálari, rithöfundur (,,hún heitir Virginía Woolfe. . . líka Doris Lessing og Sigríður Undset og Karen Blixen. . .“!) og leikkona. Og virð- ast ætla að komast í gegnum lífið án þess að hjartað kremjist — kannski vegna ástar á starfi sínu. Nema listmálarinn sem safn- aði vængjum dauðra fugla, fuglinn í list hennar missti flugið, vængbrotnaði og dó eins og fyrr segir. Og sú sem ætlaði að verða píanóleikari, sundurtættur eigin- maður hennar, sá sem ætlaði að styðja hana á listabrautinni, sá fyrir því og henni þótti svo vænt um hann. Þetta leikrit Nínu Bjarkar er um margt gott og fallegt og sýningin sem slík vel- heppnuð. Skiptingar á milli fjölmargra persóna eru hnökralausar og hefur höf- undurinn mjög gott vald á því formi sem hún hefur valið þessu verki. En persónu- lega finnst mér drykkjuskapnum gert full hátt undir höfði — kannski er maður bara orðinn svona þreyttur á áfengisvanda- málaumræðunni siðan allir fóru að fara á Voginn og jafnvel búinn að missa trúna á þennan vanda! Og endirinn of háleitur — eins og enga lausn sé að finna, nema á himnum. Ég ætla ekki að fara að tíunda frammi- stöðu einstakra leikara, heildin er góð. Sömu sögu er aö segja um lýsingu og hljóð og einnig leikmynd sem var mjög skemmtileg aö mínu viti. Sérstaklega nýja málverkið! Eitt fór dálítið í taugarnar á mér í þessari sýningu. Það var þegar einn leikarinn fór eitthvað að kássast upp á áhorfendur — daga þá inn í sýninguna. Slíkar uppákom- ur þóttu voða sniðugar meðal leikhúss- fólks fyrir nokkrum árum en ég hélt þær væru alveg komnar úr tísku og dottnar uppfyrir. Loks má ég til með að geta þess að mér finnst alveg ferlega sniðugt að láta persón- urnar heita nöfnum leikaranna sem verkið er skrifað fyrir — það skapar líka einhverja ,,extra“ nálægð. Sonja B. Jónsdóttir. 33

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.