Vera - 01.06.1985, Side 34

Vera - 01.06.1985, Side 34
Ef þú hefur stundað sýningarstaðina í bænum að undanförnu þá veistu jafnvel og ég að þar hafa verið fjölmargar góðar sýningar á myndverkum kvenna. Ef þú hins vegar hefur látið undir höfuð leggjast að skoða sýn- ingar fyrri hluta ársins þá fer hér á eftir upptalning á hverju þú hefur misst af. Bestu sýningarnar voru í Norræna húsinu, á verkum Jóhönnu Bogadóttur og Bjargar Þorsteinsdóttur. Mjög ólíkar sýningar en þó frábær- ar, hvor á sinn hátt. Jóhanna var meö olíumálverk í fremri salnum og teikningar og litógrafíur í innri salnum. Þessi verk eru expressionisk og kjarni flestra myndanna er eins konar bygging og tíöum er í tengslum við hana kraft- mikil dýr eins og hestar, naut eöa jafnvel Ijóörænir svanir. Sýning Bjargar byggðist á grunnforminu flugdreki. Hún notaöi ýmsar tegundir pappírs sem hún málaöi og límdi saman. Sumar mynd- anna voru litlar og einfaldar í byggingu en aörar mjög stór- ar og flóknari. Björg hefur mjög sérkennilegan og athyglisveröan litasans og fór á kostum í lit á sýning- unni. Oft er látið aö því liggja aö kvennapólitískar myndir þurfi að vera fígúratívar, meö aggressívu innihaldi. Mér finnst þessi sýning Bjargar af- sanna þaö. Þessi sýning fjallaði um frelsið í víöustu merkingu og var mjög at- hyglisverð innihaldslega. Ása Ólafsdóttir sýndi fyrir nokkru myndvefnaö og collage-myndir í Gallerí Borg. Ása vefur fígúratívar myndir og virðist þó nokkuð upptekin af áferö núna. Ein myndanna hreif mig sérlega, mynd af bláum fugli. Minnti mig á fuglsmyndina eftir Ásgerði Búadóttur sem er til í eftir- prentun út um allt. Mér fannst ég sjá tengsl á milli Ásu og hefðarinnar hér heima í þessari mynd. Sigrún Guðjónsdóttir alias Rúna var meö sýningu á teikningum í Gallerí Lang- brók. Flest þau verka Rúnu sem ég hef séð áöur hafa verið frekar lltil. Á sýningunni voru nokkrar stórar teikning- ar, mjög skemmtilegar. Gaman aö sjá hve gott vald hún hefur á því að vinna á stærri fleti. Ein myndanna hét ,,Freistingin“ og mynduðu nokkrar slöngur hár konu. Myndin var teiknuö á japanskan pappír meö þráö- um í sem minntu á litlar slöngur og undirstrikaði pappírinn myndefniö. Góö mynd! Sigrún Eldjárn var með sína fyrstu einkasýningu í Listmunahúsinu á teikningum og grafík. Og það eru þó nokkrar konur sem haldið hafa sínar fyrstu einkasýning- ar að undanförnu. Þóra Sigurðardóttir sýndi til dæmis í Nýlistasafninu. Mér virtist tema sýningarinnar vera leyndardómur Snæfellsjökuls, þ.e. hvernig haf og himinn geta stundum runnið saman í eitt og skiliö jökulinn eftir ójarðbundinn. Þetta efni var unnið í ætingar, teikningar og málverk. Hrifnust var ég af ætingunum. Hún sýndi nokkur stig hverrar myndar og málaði í þær með vatns- litum. í Gallerí Borg voru tvær debutsýningar kvenna, þeirra Ásdísar Sigurþórsdóttur og Valgerðar Hauksdóttur. Sýn- ingu Valgerðar sá ég ekki nógu vel til að úttala mig um hana, en sýningu Ásdísar grandskoðaði ég. Hún var að- allega með silkiþrykk þar sem eins konar trúöur fór meö aö- alhlutverkið, dansaöi til dæmis á línu eöa meö íslenska fánan. Þetta voru kventrúöar og myndirnar hétu t.d. „Fjallkona'1, „Kona meö steinhjarta" og „Nætur- dans“. Þá voru tvær sýhingar ungra kvenna í Nýló, þeirra Röngu St. Ingadóttur og Bjargar Örvar, en af þeim sýningum missti ég sökum slens, slóöarháttar og stress. Eöa þannig. Konur hafa líka verið með góö verk á nýlegum samsýn- ingum. Er skemmst að minnast verka tveggja kvenna sem voru í kjarna á Fím-sýningunni, þeirra Valgeröar Bergsdóttur og Ragnheiðar Jónsdóttur. Valgeröur var meö sérkenni- legar teikningar sem flestar voru eins konar portret. Ragnheiður var með nýjar ætingar, margar sérlega sjarmerandi. Textílfélagið var meö afmælissýningu á Kjar- valsstöðum. Góð sýning. í bili er uppi á Kjarvalsstöðum sýn- ing á verkum listamanna sem vinna í gler og eru konur í algerum meirihluta. Þetta er nýstárleg sýning hér heima og gott til þess að vita að það séu konur sem plægi akurinn fyrir glergróöur. Svala Sigurleifsdóttir. 34

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.