Vera - 01.04.1986, Page 21
var efnt til samskota og komið upp kofa fyrir þær sem hékk
upp til ársins 1857 þegar hann fauk í óveðri. Næstu 3 áratugi
var ekkert gert til að bæta úr ástandinu fyrr en Thorvaldsens-
félagiö sá um að komið var upp litlu bárujárnsklæddu timbur-
skýli 1887.
1902voru nokkrarframkvæmdirtil batnaðarvið Laugarnar.
Þá lét Knud Zimsen steypa stétt í kringum þær og laugar-
barmarnir voru hlaðir upp. Bogagrindurnar voru þá einnig
settar yfir. Þessar framkvæmdir gerðu það að verkum að nú
áttu þvottakonurnar ekki lengur á hættu að kollsteypast ofan
í sjóðandi vatniö þegar þær bogruðu yfir því.
Þótt notkun á Laugunum hafi alltaf verið mikil var hún þó
mest á árunum 1916—1921, vegna kolaskortsins sem kom í
kjölfar stríðsins í Evrópu. Þá hefur sennilega mikið verið
skvampað, hrópað og skeggrætt inn í Laugardal. Öðru hvoru
Qáfu þær sér tíma til að rétta úr bakinu til að fá sér kaffisopa
'agaðan úr hveravatni og spjalla. Það hefur sennilega ekki
verið til sú vinnukona í Reykjavík á þessum árum sem ekki
lagöi leið sína i Laugarnar einu sinni í viku, „kvenfólkið sem
enginn kærði sig um".
Á skútuárunum komu þarna einnig franskir skútusjómenn
og þvoðu af sér. Þeir notuðu eystri laugina, en hún var minni
og ekki eins heit og aðallaugin fyrir vestan hana.
1930 kom Hitaveitan og virkjaði aðallaugina en við það
minnkaði vatnið í Laugunum mikið. Gömlu laugarhúsin sem
voru orðin tvö voru rifin, en 1942 var reist þvottahús sem nú
er horfið. Alveg fram til 1960 notuðu konur þvottahúsið. Sumar
höfðu jafnvel með sér litlar þvottavélar sem hægt var að stinga
í samband þarna í þvottahúsinu. Áður rann Laugalækurinn á
milli lauganna tveggja en hann er einnig horfinn.
Það er hætt við að þeim fyndist ýmislegt hafa breyst, vinnu-
konum fyrri alda, ef þær litu við í Laugardalnum núna.
Laugarnar sem einu sinni voru á allra vörum eru nú flestum
gleymdar og þvottakonan hans Ásmundar myndhöggvara
bograr yfir tómum balanum. Þegar næstu kynslóðir eiga leið
hjágömlu steinþrónum og bogagrindunum hafa þær ekki hug-
mynd um hvað þarna fór fram! . . . að þarna var einu sinni líf
í tuskunum!
Gyða Gunnarsdóttir
Heimildir:
„Islandsferö J. Ross Browne 1862"
Morgunbl. 27. 8. 1961
— Úr bæ í borg — K. Zimsen
— Vinna kvenna á íslandi I 1100 ár — Anna Sigurðardóttir
21