Vera - 01.04.1986, Síða 38

Vera - 01.04.1986, Síða 38
Rithöfundurinn svararspurningum áfundimeð bandarískum háskólastúd- entum. Doris Lessing í Iðnó Einn þeirra erlendu gesta, sem boönir eru á Listahátíðina í vor, er rithöfundurinn Doris Lessing. Þó svo aöeins ein bóka hennar hafi veriö þýdd á íslensku — Minningar einnar sem eftir lifði, útg. Nótt 1985, má gera ráö fyrir aö Doris Lessing eigi sér stóran les- endahóp hér á landi eins og annars staðar. Reyndar mun von á íslenskri þýðingu á fyrstu skáldsögu hennar, The Grass Is Singing, 1950, núna meö vorinu. Doris mun tala og svara fyrirspurnum á sérstakri kynn- ingardagskrá I lönó þ. 1. júní en hún mun einnig afhenda verðlaunin I smásagnakeppni Listahátíöar þ. 31. maí. Kunnast verka Doris er án efa ,,The Golden Notebook", sem kom út áriö 1962 og vakti mikla athygli. Sagt hefur verið aö sú bók hafi sagt fyrir kvennahreyfinguna ,,nýju“ því í henni varfjallað um líf tveggja kvenna á þann hátt sem ekki haföi verið gert áður og vakið máls á mörgu, sem slðan hefur komist ofar á bauginn. Þá má nefna fimm binda verka Doris um Mörtu Quest (bindin heita Martha Quest, A Proper Marriage, A Ripple From The Storm, Landlocked og The Four Gated City) þar sem hún fjallar um þau öfl sem móta líf kvenna. Þá hefur Doris skrifað mikinn fjölda smásagna og annarraskáldsagna, m.a. kom hún lesendum sínum á óvart 1972 með útkomu vísinda- skáldsögu, sem átti eftir að halda áfram í einum fimm bind- um. (Það fyrsta heitir Shik- asta). í þeim bókum snýr Doris sér frá einstaklingnum og að framtíðarsýn I miklu víðara samhengi. Meöal nýjustu verka Doris Lessing eru svo dagbækur Jane Somers, sem Doris fékk gefnar út undir dul- nefni, nafni söguhetjunnar Jane Somers. Sú stríöni við bókenntaheiminn vakti gífur- lega athygli þegar upp komst, ekki síst vegna þess að flestir ,,meiriháttar“ gagnrýndendur höfðu látið þessa „frumraun" einhverrar Jane Somers fram hjá sér fara. Doris Lessing fæddist í Iran 1919 en ólst upp á búgarði foreldra sinna í Afríku. Hún hætti skólagöngu 14 ára og fór sem au pair stúlka til Salisbury, þáverandi Suður Rhodesíu. Þar hélt hún áfram að vinnaviðýmisstörf, giftisig, eignaðisttvöbörn, skildi, giftist aftur, átti eitt barn enn, en flutti svo til London árið 1949. Næsta ár kom fyrsta skáld- saga hennar út og síðan hefur Doris lifað af ritstörfunum. Hún býr enn í London en ferðast mikiö til að halda fyrirlestra og hitta fólk á svipaðan hátt og hún mun gera hér í Iðnó I júní. Lausleg könnun í bókabúðum bæjarins leiddi í Ijós að bækur hennar eru ekki auðfundnar, t.d. var The Golden Notebook hvergi að sjá. E.t.v. taka bóka- búðirnar við sér vegna yfirvof- andi komu þessa rithöfundar, en Doris Lessing er talin með merkustu höfundum, sem nú rita á enska tungu. Mjög marg- ar bækur hennar hafa verið þýddar á dönsku, sem gæti komið að gagni þeim sem vilja kynnast henni en lesa ekki ensku. Ms LÍFSSAGA BARÁTTU- KONU Höf.: Inga Huld Hákon- ardóttir Vaka-Helgafell 1985 229 bls. Lífssaga Aðalheiðar Bjarn- freðsdóttur er engin smásaga. Hún er saga barns sem elst upp í bændasamfélagi með 1000 ára gamlar rætur og saga konu sem kýs að helga krafta sína þeim sem fá hvað þynnst launaumslög, Sóknarkonun- um. Saga Aðalheiðar minnir okk- ur á hve ótrúlega stutt er síðan íslenskt samfélag gekk á vit tækninnar, hóf dansinn kring- um gullkálfinn og yfirgaf torf- kofana. Aðalheiður fetar sinn veg gegnum lífið með ríka rétt- lætiskennd og vissu um að fá- tækt sé versti glæpur sem til er. Ég ætla að koma því að strax að þetta er góð bók, vel skrif- uð, vekjandi og skemmtileg. Ég hefði einungis óskað þess að Inga Huld og Aðalheiður hefðu gefið sér enn betri tíma, skrifað enn meira, því ævi Að- alheiðar er efni í svona eins og þriggjabindaverk. En hvað um það, lífssagan liggur hér á borðinu og mitt er að greina lesendum frá því hvað I þessari bók er að finna. Saga Aðalheiðar hefst aust- ur í Meðallandi þar sem hún elst upp í hópi 19 systkina. Heimilið er fátækt og þarf jafn- vel að leita á náðir sveitarinnar sem lögum þótti hin mesta skömm, enda fá krakkarnir að heyra það I tfma og ótíma. Sár er sagan af foreldrum Aðal- heiðar, föður hennar sem var einn þeirra mörgu sem þráðu annað og betra líf en honum var skapað og móður hennar sem ól öll þessi börn og varð stundum að láta þau frá sér. Það er einkum þessi þáttur í lífssögunni sem gaman hefði verið að fræðast meira um, því að greinilega mótaöist allt lífs- viðhorf Aðalheiðar af reynslu bernskunnar. Síðan kemur að því að Aðalheiður fer að heim- an og gerist vinnukona í Reykjavík. Vinnukonustarfið var nánast það eina sem ung- um stúlkum stóð til boða á vinnumarkaði, en síðan hvarf sú góða stétt eins og dögg fyrir sólu I rykmistri stríðsgróðans. 38

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.