Vera - 01.02.1989, Blaðsíða 34

Vera - 01.02.1989, Blaðsíða 34
í heimsókn hjá Sameinuðu þjóðunum Fyrir fjórum árum þegar ég vaknaði til þess á morgnana að annast lítinn son minn auk tveggja eldri dætra, heimili og karl uppi í Árbæ, sótti mér félagsskap í krakkakraðakið sem fylgdi stelpunum og var jafnvel farið að finnast það átak að stynja upp: „Eitt fransbrauð og fjórar kringlur“ úti í bakaríi, þá hvarflaði það ekki að mér að nú mundi ég sitja hér og skrifa um för mína til New York á 43. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. — En svona er lífið og Kvennalistinn. Allsherjarþingiö er einskonar miðkjarni Sameinuðu þjóðanna, þar eiga öll aðildarríkin sína fulltrúa og þar er fjallað um öll hugsanleg mál sem upp kunna að koma meðal ríkja S.Þ. Allsherjarþingið kemur saman einu sinni á ári og stendur þingið yfirleitt yfir frá því í september fram í miðjan desember. Fyrstu vikurnar ávarpa þjóð- höfðingjar þingið, þá tekur við vinna í nefndum í u.þ.b. sex vikur. Nefndir þingsins eru sjö: Fyrsta nefnd, þar sem fjallað er um afvopnunarmál og önnur mál því tengd. Til hliðar við fyrstu nefndina starfar „sérstaka stjórnmálanefndin" semfærtil meö- ferðar einstök afmörkuð verkefni á sviði fyrstu nefndar- innar. Má þar nefna m.a. Palestínumálið sem mjög var til umræðu á þessu þingi. í annarri nefnd eru efnahags- og umhverfismál tek- in fyrir. Sérstaklega var fjallað um efnahagsþróun fá- tæku og skuldugu þjóðanna og fyrir þinginu lá skýrsla um stöðu þessara mála og hverjar horfurnar væru hjá Afríkuþjóðunum. Þá var einnig fjallað um efnahagsþró- unina í Mið-Ameríku. Fróðlegt var að heyra að margir þeirra sem þátt tók’u í umræðunum lögðu á það áherslu að aukið tillit þyrfti að taka til hinna mannlegu hliða við lausn efnahagsmálanna. Á sömu nótum var málflutn- ingurinn á sérstökum fundi sem samtök, sem heita North South Roundtable og UNDP (þróunarstofnun S.Þ.) héldu sameiginlega til að kynna skýrslu sína um þróun mannlegs samfélags fram til ársins 2000; Mark- mið og leiðir (The Amman Statement on Human Devel- opment Goals and Strategies for the Year 2000). Þar lýstu menn m.a. þeirri skoðun sinni að fram til þessa hefði verið lögð allt of mikil áhersla á aukinn hagvöxt á kostnað manngildis. í þriðju nefnd eru hvers kyns félags- og jafnréttismál, m.a. staða kvenna, málefni barna, flóttamanna o.fl. Ef öllum samþykktum þriðju nefndar væri framfylgt alls staðar í heiminum, þá væri annað að lifa í henni ver- öld. Hér á landi m.a. eru margar samþykktir þriðju nefnd- ar ekki virtar, eins og við vitum, og þess vegna m.a. höf- um við Kvennalista. í fjórðu nefndinni er fjallað um nýlendumál sem er hægt hverfandi vandamál. í ár varð nokkur umræða um sjálfstæði Namibíu, sem virðist vera að komast í höfn, sérstaklega eftir að fréttir bárust af því að Suður-Afríka og Kúba stæðu í viðræðum um brottflutning herliðs frá Angóla, sem er nágrannaríki Namibíu, en brottflutning- ur hers þaðan er forsenda þess að S.Þ. geti samþykkt sjálfstæði landsins. Fimmta nefndin hefur fjárhagsáætlun S.Þ. og fjár- mál til meðferðar. Kostnaður við rekstur S.Þ. er veru- legur en þó einungis örlítið brot af þeim fjármunum sem fara i vopnaframleiðsluna í heiminum í dag. Talið er að kostnaðurinn við S.Þ. 1988 og 1989 verði u.þ.b. 900.000.000 Bandaríkjadalir hvort ár, sem er nálægt 40 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar eru fjárlög íslenska ríkisins 1989 77 milljarðar kr. Tillag þjóðanna til S.Þ. er mjög misjafnt. Við greiðum 0,03%, lágmarks- upphæð er0.01%, en Bandaríkin eiga að greiða mest, eða 25% kostnaðar. Bandaríkin hafa dregið að greiða sinn skerf nú síðustu misserin auk þess sem vanskil ým- issa annarra aðildarríkja hafa verið veruleg. Þetta hef- ur gert rekstri S.Þ. erfitt fyrir því öll lántaka er bönnuð. Sjötta nefndin skal síðan gera tillögur um samræm- ingu lagaákvæða á ýmsum sviöum og breytingar á þeim. í nefndunum eru venjulega fundir daglega frá 10 til 13 og frá 15 til 18 en auk þess eru haldnir óformlegir fundir þar sem efni tillagnanna er rætt og reynt að leysa ágreiningsefni áður en þær eru lagðar fram til atkvæða- greiðslu, þá oft með einhverjum breytingum. Allsherjarþingið er ein af sex meginstofnunum S.Þ. Hinar eru: Öryggisráðiö. Þar eiga sæti fulltrúar 15 þjóða, af þeim eru tíu valdir til tveggja ára í senn af Allsherjar- þinginu en fimm ríki hafa ætið fulltrúa í Öryggisráðinu. Þau eru: Kína, Frakkland, England, Bandaríkin og Sov- étríkin, sem hafa neitunarvald í svokölluðum þýðingar- miklum málum. Annars telst mál samþykkt í ráðinu ef það hlýtur atkvæði a.m.k. níu ríkja sem eiga þar sæti. Öryggisráðið er sú stofnun S.Þ. sem er ætlað að taka fyrir friðar- og öryggismál og þangað fara slík mál oft eftir að hafa verið afgreidd á Állsherjarþinginu eða hjá Alþjóðadómstólnum. Gæsluverndarráðið (Trusteeship Council). Það heyrir nú nánast sögunni til þar sem verkefni þess var að sjá til þess að ellefu nýlendur fengju sjálfstæði, þar af hafa nú tíu öðlast það. Alþjóðadómstóllinn í Haag, sem er dómstóll S.Þ. í ágreiningsmálum þeirra og gefur þeim einnig lagaleg- ar ráðleggingar. í dómnum eru 15 dómarar. Sömu þjóðir og hafa fasta aðild að Öryggisráðinu hafa alltaf dóm- ara í dómstólnum. Hinir tíu eru kjörnir til níu ára í senn af Allsherjarþinginu. Dómur fellur á meirihluta og hægt er að áfrýja dómsúrskurði til Öryggisráðsins. Þjóðir eru ekki nauðbeygðar til að fara eftir úrskurði dómstólsins

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.