Vera - 01.08.1991, Page 5
HIN HEILAGA FJÖLSKYLDA
Hvert þessara dæma sýnir
„alvöru" fjölskyldu? Hvað er
annars íjölskylda? Eru það
þeir sem þú snæðir með á
aðfangadagskvöld? Það fólk
sem þú þværð af og eldar
ofaní? Fólkið sem býr í sömu
íbúð og þú deilir hinu daglega
lífi með? í orðabók Menningar-
sjóðs (1963) segir: fjölskylda:
foreldrar og börn þeirra; hús-
ráðendur og afkomendur
þeirra; systkini og skylduiið
þeirra. Svo mikið er víst að hin
dæmigerða „kjarnafjölskylda“
verður æ fáséðari en ný og
fjölbreyttari íjölskylduform al-
gengari, samanber dæmin hér
að framan. Kona nokkur, sem
er fráskilin með tvö börn, fór í
messu á aðfangadagskvöld
með sex ára son sinn. Hjón
með tvö börn settust fyrir
framan þau og snáðinn ljóm-
aði allur, leit á móður sína og
sagði: Mamma sjáðu, þarna er
alvöru fjölskylda! Móðurinni
var brugðið, hún tók utan um
drenginn og reyndi að sann-
iðka þó raðkvæni sem er í
raun nýtt form á fjölkvæni. í
stað þess að eiga margar
konur í einu fara menn úr
einni sambúð í aðra og eignast
þannig nokkra maka á lífs-
leiðinni. Ef fólk eignast barn
með öllum mökunum liggur í
augum uppi að fjölskylduilór-
an verður sífellt íjölskrúðugri.
Teygjufjölskyldur verða æ al-
gengari, þ.e. fjölskyldur þar
sem börn úr fyrri samböndum
búa um tíma á heimilinu (aðra
hverja helgi, viku eða mánuð í
senn). í Danmörku er
algengast að fólk búi eitt. Hér
telst einstaklingur ekki vera
fjölskylda og einstæðir for-
eldrar og börn þeirra ekki
heldur. Nei, allt miðast við
pabba mömmu og börnin tvö,
hvort sem það er íbúðar-
húsnæði, barnabækur, matar-
pakkningar eða sólarlanda-
ferðir. Þeir sem uppfylla ekki
þessi skilyrði verða að fara í
gegnum lífið án nokkurs fjöl-
skylduafsláttar.
HEILAGA
FJÖLSKYLDA
færa hann um að þau væru
líka alvöru íjölskylda. En eru
þau það? Væri kannski ráð að
setja visitölufjölskyldu í eitt
húsanna í Árbæjarsafni svo
hægt sé að sjá og skoða þessa
einingu sem er „hornsteinn
samfélagsins" og allt miðast
við? Þá væri hægt að koma
nieð heilu barnaheimilin og
bekkina til að gefa börnum,
sem búa í „gervi" fjölskyldum,
kost á að sjá „alvöru" fjöl-
skyldu.
Á íslandi eru 7837 einstæðir
foreldrar (þar af 7284 ein-
stæðar mæður). Sumir eru
fráskildir, en aðrir hafa alltaf
verið einir. Þriðju hverri sam-
búð lýkur með skilnaði. Hér
tíðkast einkvæni en sífellt fleiri
íslenska fjölskyldan er að
breytast en samfélagið tekur
lítið tillit til þess. Lítið hefur
verið rætt um teygjuljölskyld-
una á opinberum vettvangi.
Getur teygjufjölskyldan t.d.
búið í venjulegu íbúðarhús-
næði? Hvernig er að koma inn
í fjölskyldu sem stjúpmóðir/-
faðir? Hvernig er að eiga
marga „pabba“ og „mörnmur"
út um allan bæ og aragrúa
stjúpsystkina og hálfsystkina?
Hvernig ganga samskiptin við
fyrrverandi maka? Hver ber
ábyrgð á öllum þessum börn-
um? Hver heldur utan um
teygjufjölskylduna? Reynir nú
meira á skipulagshæfni
kvenna en áður?
RV
5