Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 22
i
HIN HEILAGA FJOLSKYLDA
HVAD ER ERFIDAST
VID AD SKIUA?
VERA leitaöi til nokkurra
kvenna sem eiga þaö sam-
eiginlegt að hafa skiliö viö
maka sinn og bað þœr aö
deila reynslu sinni meö les-
endum. Þœr óskuöu allar nafn-
leyndar, enda um viökvœm
mól aö rceöa á opinberum
vettvangi. Viö hefðum helst
viljaö taka viðtal viö hverja og
eina um þœr breytingar sem
eiga sér staö viö skilnaö, en slíkt
heföi oröiö of langt mól. Viö
ókvóöum því aö fá konur til aö
segja okkur í nokkrum setning-
um, hvaö þeim heföi þótt
erfiöast aö kljást viö þegar
þœr skildu.
35 ára með 2 böm
Ég á mjög erfitt meö að horfast
í augu viö þá staðreynd aö
vera hafnað fyrir aöra konu. Ég
hef verið mjög einmana og
niðurdregin. Allt sem viö gerö-
um saman, allar góöu stund-
irnar hrannast upp í huganum.
Ég sakna hans ennþá.
30 ára með 1 barn
Þaö er eitt og hálft ár síðan viö
skildum. Fyrsta áriö eftir skiln-
aöinn var mjög erfitt. Ég haföi
engan hemil á öllum þeim
tilfinningum sem flœddu um
huga minn, ég var aö springa
úr reiði og sorg. Ég ákvaö þó
einhverntímann á þessu tíma-
bili aö vinna meö sjálfa mig og
tilfinningar mínar. Og mér finnst
ég hafa verið mjög skynsöm.
Þaö þýöir ekki aö sýta þaö sem
liðið er, heldur horfa fram á viö
meö bros á vör. Samband mitt
viö fyrrverandi mann minn er
ágcett í dag og ég er aö mestu
leyti komin yfir erfiðustu
tilfinningasveiflurnar.
31 árs með 2 börn
Ég gafst upp á því hvaö
maöurinn minn hreifst af öörum
konum. Ég fór því frá honum
fyrir fjórum árum. Fyrstu tvö árin
voru erfið, sérstaklega jólin. Ég
grét í öllum jólaboðum. Svo
breytti ég um mynstur, skipti um
vinnu og íbúö og fór aö
umgangast bernskuvinina
aftur. Þá fór allt að ganga mér
í hag. í staö þess aö eyöa orku
í aö ergja mig yfir honum
hugsa ég meira, les og pœli.
Ég hef aldrei verið jafn ham-
ingjusöm, en sé stundum eftir
því aö hafa eytt svona mörg-
um árum í leiðindi. Ég heföi átt
aö skilja miklu fyrr.
45 ára með 4 börn
Þaö er mjög stutt síðan viö
skildum. Ég myndi segja aö
mér þœtti einna erfiðast aö
kljást viö óttann viö framtíðina.
Hvaö tekur viö. Ég stend illa
fjárhagslega og líf mitf snýst í
kringum þaö aö láta enda ná
saman. Þetta er basl og aftur
basl. Tilfinningalega er ég einn-
ig gjaldþrota.
50 með tvö uppkomin börn
Ég viöurkenndi fyrir sjálfri mér á
fjörtíu og fimm ára afmœlis-
daginn aö ég var mjög óham-
ingjusöm. Mér fannst ég var
komin inn í öngstrceti, hjóna-
bandið var löngu dautt og viö
bceöi í því aö halda andlitinu.
Það tók mig tvö ár aö safna
kjarki til aö fara. Ég vissi sem var
aö fjárráö mín yröu verri, en
peningar eru ekki allt. Ég fékk
þokkalega vinnu og er mjög
áncegð meö lífið og tilveruna.
52 ára með 3 börn
Þaö var sameiginleg ákvöröun
okkar beggja þegar viö skild-
um fyrir tíu árum síöan. Viö
höföum einfaldlega vaxiö frá
hvort ööru. Áhugamál voru aö-
skilin og sameiginlegar stundir
fáar. Börnin voru orðin hálffull-
oröin þegar viö skildum. Ég
held aö skilnaöurinn hafi verið
erfiöari fyrir þau en okkur. Viö
skildum í mesta bróöerni og í
dag er ég afskaplega áncegð
meö lífið og tilveruna. Maöur-
inn minn fyrrverandi kvcentist
fljótlega eftir skilnaðinn en ég
hef kosiö aö búa ein, því þann-
ig finnst mér ég geta ráöiö tíma
mínum sjálf.
28 ára með 2 börn
Ég hef mestar áhyggjur af
börnunum mínum. Mér finnst
þau loka á tilfinningar sínar,
þau vilja ekki tala um skiln-
aöinn eöa pabba sinn. Þau
hitta hann aöra hverja helgi,
en hann hefur ekkert samband
viö þau þess á milli, sem er
mjög slcemt aö mínu áliti. Eldra
barniö byrjaöi aö pissa undir á
nóttunni og fékk hegðunar-
vandamál í skólanum. Ég hef
miklar áhyggjur af ástandinu
og œtla á ncestunni aö leita
sérfrœöihjálpar fyrir mig og
börnin, því mér tekst engan
veginn aö vinna úr þessum
málum sjálf.
28 ára og barnlaus
Ég var átján ára þegar viö
byrjuöum saman og tuttugu
og sex ára þegar hann fór
mjög skyndilega frá mér. Mér
leið hrceöilega, var öskureið og
bitur. Þaö sceröi mig líka aö fólk
sem ég haföi taliö vini mína
hœtti aö hafa samband viö
mig. Þaö er eins og einhleypar
konur séu einhverjar grýlur! Ég
byrjaði hálfu ári seinna í fram-
haldsnámi, kynntist hressum og
skemmtilegum stelpum og
náöi mér aftur á strik. Þegar ég
ek fram hjá nýja húsinu hans,
þar sem hann býr meö konunni
sem hann hélt framhjá mér
meö og barninu þeirra, fce ég
kuldahroll. Ekki vildi ég vera í
hennar sporum, hún leysti mig
úr álögum og ég er henni svo
þakklát.
22