Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 19

Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 19
HIN HEILAGA FJOLSKYLDA „Loks kom hann aö turnher- berginu, þar sem Þyrnirós var, og opnaöi dyrnar. Hún lá þar í rúminu og var svo undra fögur, aö hann þóttist aldrei hafa séö jafnfríða mey, og staröi á hana hugfanginn. Og hann gat ekki stillt sig um aö lúta ofan aö henni og kyssa hana. En í sama bili vaknaöi Þyrnirós, lauk upp augunum og brosti til hans ástúðlega. Þau leiddust nú niður í höll- ina, og vaknaði þá kóng- urinn og drottningin og allt hiröfólkiö ... Og nú var hald- iö brúðkaup þeirra kon- ungssonar og Þyrnirósar meö fádœma viöbúnaöi og viöhöfn, og unnust þau til œviloka." (úr Grimms- œvintýrum.) Þannig er okkur frá blautu barnsbeini boöiö upp á óraunhœfan veruleika m.a. í bókum og kvikmyndum. Þar felst lausn allra vanda- mála í hamingjusömu hjónabandi. Slíkar sögur enda oftast þegar sögu- hetjurnar hafa yfirstigiö ýmis konar erfiöleika og rósum stráö braut hjónabandsins blasir viö. En engar rósir eru án þyrna og þegar mesta sœluvíman er runnin af elskendunum blasir oft blá- kaldur raunveruleikinn viö, sem mörgum reynist erfitt aö horfast í augu viö. Skilnaöir eru ekkert nýtt fyrirbrigöi hvorki hér á landi né annars staöar. Orðið hjónaskilnaöur kemur þó ekki fyrir í íslenskum hag- skýrslum fyrr en áriö 1904. í íslendingasögum má finna mörg dœmi um skilnaði á þjóðveldistímanum og Grá- gás geymir skýr ákvœöi þar aö lútandi. Tíöni hjónaskilnaöa hefur fariö ört vaxandi hin síöustu ár. Á tuttugu ára tímabili hafa lögskilnaðir nœrri tvö- faldast, úr 263 áriö 1969 í 520 áriö 1989. Þaö lœtur nœrri að þriöja hver fjölskylda í landinu ,gangi í gegnum skilnaö. í skýrslum Hagstof- unnar eru engar samsvar- andi tölur fyrirliggjandi um sambúö og sambúðarslit sem myndu án efa breyta myndinni töluvert. Þessar staðreyndir kalla fram al- mennar hugleiöingar um stööu hjónabandsins í dag. Er þaö úrelt fyrirbrigöi? í aldanna rás hafa tölu- veröar breytingar oröiö á þróun fjölskylduímyndarinn- ar hér á landi. Margir horfa meö eftirsjá til liöinna tíma, þegar stórfjölskyldan bjó undir sama þaki. Afi sagöi börnunum sögur, amma þrjónaði sokka á mann- skaþinn, mamma eldaöi matinn, pabbi vann úti og börnin léku sér sœl og rjóö í túnjaðrinum. Auðvitað er þetta einföldun. Því má heldur ekki gleyma aö þefta fólk vann aö gagn- kvœmum hagsmunum og haföi ef til vill úr litlu aö moöa. Hin öra þróun borg- arsamfélagsins meö allri sinni tœknivœðingu og neyslukapphlaupi hefur síö- an meö tíö og tíma leyst „gömlu" fjölskylduna af hólmi. Forsendur fjölskyld- unnar og hjónabandsins eru allt aörar en áöur. Vonir, vcentingar og kröfur á einstaklingana hafa breyst, samfara þróuninni í sam- félaginu. Margir eru þeirrar skoö- unar aö það sé mun flókn- ara að lifa í dag en áöur, þar sem fólk hafi um svo margt aö velja í lífinu. Lífs- gceöakapphlaupiö setur mark sitt á einstaklingana og hraðinn í þjóöfélaginu og kröfurnar sem viö gerum til aö eignast veraldleg gceöi sitja oft í fyrirrúmi á kostnaö andlegra verö- mceta. Þannig má lengi velta vöngum yfir orsökum hjóna- skilnaða, sem eflaust má rekja til óteljandi þátta. Staöreyndin er engu aö síður sú aö hundruð manna slíta samvistum á hverju ári. Hugmyndir fólks gagnvart fráskildu fólki hafa einnig breyst, skilnaður er ekki leng- ur félagslegt skipbrot eða hneisa. Engu aö síöur eru allir sammála um aö skilnaði fylgja mikil tilfinningaleg átök og röskun á högum allra fjölskyldumeölima. 19

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.