Vera - 01.08.1991, Síða 28

Vera - 01.08.1991, Síða 28
AFMÆLI UPPSKRIFTIR Afmœlistertuna má móta á margvíslegan hátt. Hœgt er aö búa til kisuköku, trúöa- köku, fiðrildi (sjá mynd) eöa þaö sem hugmyndaflugiö leyfir. Notaöar eru hefö- bundnar súkkulaöikökuupp- skriftir, sem krakkar eru venju- lega mjög hrifnir af. Deigiö er sett í hringlaga form eða í ofnskúffu og þegar kakan er bökuö er hún skreytt og mótuö aö vild. Margir eiga sína uppáhalds uppskrift en hér fylgir meö ein góö. Þaö er um aö gera aö gefa hugmyndafluginu lausan tauminn þegar barnaafmœli er annars vegar. Þaö má jafnvel halda upp á afmœlið eftir árstíöum, hafa t.d. páskaafmceli þar sem allir fá málshátt, eöa gera afmœlis- veisluna að allsherjar prins- sessuleik, sjórœningjaleik, draugaleik eöa ööru sem ykkur dettur í hug. Það sem skiptir mestu máli er aö allir skemmti sér vel. Góöa skemmtun! GG Heimildir: „Hún á afmœli í dag“ B.Ed. ritgerð í Kennaraháskóla ís- lands 1989. Eftir Guörúnu Ey- þórsdóttur og Kristínu Ragn- arsdóttur. Bemskan eftir Símon J. Jó- hannsson og Bryndísi Sverris- dóttur Örn og Örlygur 1990. Ég á afmœli í dag eftir Björgu Árnadóttur. Ragnheiöur Gestsdóttir myndskreytti. MM 1988 Leikjahefti eftir Bryndísi Sverrisdóttur. Þjóðminjasafnið 1990. Teikningar: Ásgerður Helgadóttir SKÚFFUKAKA (súkkulaði) 375 g hveiti 350 g sykur 50 g kakó 11/4 tsk sódi 1 tsk salt 1 /4 tsk lyftiduft 2 1/2 dl smjörlíki 2 egg 1 tsk vanilludropar Allt látið í hrærivél og hrært á hálfum hraða í 1/2 mínútu. Vélin er svo sett á fullan hraða í 3 mínútur. Ofnskúffa er smurð vel og örlitlu hveiti sáldrað yfir. Deiginu er síðan jafnað vel í skúffuna. Kakan lyftir sér vel svo að ekki má fylla bökunarskúffuna nema til hálfs. Hún er svo bökuð við 200 gráður þar til hún er farin að losna frá börmunum og prjónn sem stungið er í hana miðja kemur út hreinn. Uppskriftin er mjög stór svo það er gott að hafa lítil pappírsform við hendina til að nýta afgangsdeig. KRISPIES-smákökur Þessar smákökur, sem settar eru í lítil pappaform, njóta mikilla vinsælda í barnaaf- mælum. 60 g smjör 5 msk síróp 100 g dökkt suðusúkkulaði Allt brætt saman i potti. Rice Krispies sett í skál og því sem var að malla í pottinum hellt yfir og hrært saman. Sett í litil form og látið kólna. K0RNFLEX smákökur 2 bollar kornflex 1/2 bolli brytjaðar hnetur (má sleppa) 2 eggjahvítur 1 bolli sykur Byrjað á þvi að þeyta eggja- hvíturnar. Sykurinn síðan settur út í. Hræra lítið. Korn- ilex (og hnetur) sett saman við með skeið. Sett á smurða plötu með teskeið. Bakað í 10 mínútur við 200 gráður. BRAUÐ Hægt er að skreyta brauð- sneiðar á mismunandi hátt, vera með karla og kerlingar og skreyta með osti, agúrkum, tómötum, skinku, harðsoðn- um eggjum og fleiru. Eins er hægt að búa til brauðtertu sem er ávallt vinsæl. Þá er keypt tilskorið formbrauð og á milli má setja skinku, spægi- pylsu, sardínur, rækjusalat, skinkusalat, grænmeti og fleira eftir smekk. Það má síðan skreyta brauðtertuna á margvíslegan hátt. Einnig er hægt að gera litlar samlokur úr formbrauðinu. Leyfið hug- myndafluginu að njóta sín! AÐRAR HUGMYNDIR: poppkorn ís pitsa pylsur 28

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.