Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 34

Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 34
ÞINGMÁL m ! ■ -1 Þingkonur Kvennalistans á 113. löggjafarþinginu. Ljósm.: Gunnar V. Andrésson. OG ÆÐI Á ALÞINGI Dyggir lesendur VERU til margra ára hafa veitt því athygli, að lítið hefur verið um fréttaflutning af Alþingi í blaðinu upp á síðkastið. í eina tíð fengu lesendur alltaf sinn reglulega skammt af slíku, og þótti sumum hann ómissandi, en öðrum fannst hann taka upp dýrmætt pláss undir annað efni, sem hvergi annars staðar væri til umfjöllunar. Þingmálafréttir llutt- ust því algjörlega yflr í mánaðarlegt FRÉTTABRÉF KVENNALISTANS, sem líklega er að mörgu leyti eðlilegra. Engu að síður þótti nú við hæfi að gefa örstutt yfirlit yfir þingstörf Kvennalistakvenna á síðasta vetri. 113. löggjafarþingið var nokk- uð dæmigert fyrir það æði, sem rennur á flesta flokka og einstaka þingmenn i tilefni kosningaárs. Umræður utan dagskrár voru nánast daglegt brauð, deilur um þingsköp fylla nú marga dálka Alþingistíðinda frá þessum vetri, og málefnaleg umræða varð alltof oft að þoka fyrir persónulegu karpi, eins og gjarna vill verða við þessar aðstæður. Fréttaflutningur fjölmiðla af þingstörfunum minnti stundum helst á frásagnir af íþróttaviðburðum, og allt er þetta í samræmi við leikreglurnar títtum- töluðu, sem við Kvennalistakonur erum ófúsar að beygja okkur undir. Eins og endranær fór mikill tími okkar kvenna í það að bregðast við frumkvæði annarra, einkum stjórnarflokkanna, en þó voru ýmis mál úr þeim ranni, sem strönduðu á sundurþykkju þeirra 34 sjálfra, og hefur farið fé betra. Nokkur mál voru þó afgreidd, sem okkur þykja varða nokkru. Má t.d. nefna lög um leikskóla, sem þó gengu skemur en við hefðum óskað. Kvennalistakonur vilja að sjálfsögðu, að öll börn eigi kost á leikskólavist frá þvi fæðingarorlofi lýkur til 6 ára aldurs og telja rétt, að ríkisvaldið styrki sveitarfélög til þess að tryggja sem hraðasta uppbyggingu leikskóla. Nýju lögin taka ekkert á þeim þætti málsins. Þá voru samþykktar breytingar á grunnskólalögunum, sem Kvennalistakonur studdu, þótt þeim þætti þar einnig of skammt gengið, einkum eftir að mennta- málaráðherra lét undan Sjálfstæð- ismönnum og samþykkti að taka út ákvæði um skiptingu stærri sveitarfélaga í skólahverfl og ákvæði varðandi greiðslur fyrir skólaathvörf. En þannig ganga kaupin oft fyrir sig í óðaönnum síðustu þingdaga hveiju sinni. Mikill tími og orka fór í umræður um evrópska efnahags- svæðið, en Kvennalistakonur hafa frá upphafl varað sterklega við því skrefl, sem er í rauninni ekkert annað en stórt skref inn í Efna- hagsbandalagið sjálft. Mörgum flnnst erfltt að átta sig á þessum eilífu samningaviðræðum og til hvers þær leiða. Af umfjöllun og áherslum þeirra sem viðræðurnar leiða fyrir hönd íslendinga mætti ætla, að þær snerust aðeins um fisk og aftur fisk. En þá væri málið einfalt, því enginn vill láta fískveiðirétt okkar af hendi. En þær snúast svo sannarlega líka um réttindi fólks til ýmissa annars konar „veiða" hvert í annars land- helgi, og á það hafa Kvennalista- konur bent og varað sterklega við afleiðingunum. Álverið var líka oft og mikið til umræðu. Kvennalistakonur hafa unnið gegn því með öllum tiltæk- um ráðum, enda telja þær nýtt 200 þús. tonna álver glapræði bæði með tilliti tll kostnaðar og allra umhverfisþátta. Margt fleira mætti rifja upp af þingstörfum síðasta vetrar, en þingkonur Kvennalistans gerðu auðvitað fleira en að standa uppi í hárinu á ráðherrum og öðrum herrum. Þær voru sem fyrr iðnar við að bera fram tillögur og frumvörp að eigin frumkvæði. Fyrirspurnir þeirra til ráðherra um hin margvíslegustu efni urðu alls 34, en slíkar fyrirspurnir vekja oft verðuga athygli á brýnum málum og ýta við þeim, sem bera ábyrgð á þeim. Þá lögðu Kvennalistakonur fram 12 frumvörp til laga og 12 tlllögur til þingsályktunar. Aðeins 4 af þessum ágætu þingmálum voru afgreidd frá þinginu, sem er heldur rýr eftirtekja, en ekki óeðlileg miðað við það ástand sem ævinlega ríkir á kosningaþingi. Flestar fyrirspurnirnar, til- lögurnar og frumvörpin voru um úrbætur í málum barna og ung- menna, atvinnumál kvenna og umhverfismál. Tillögu um fram- leiðslu vetnis var vísað til ríkis- stjórnarinnar, en samþykktar voru tillögur um átak gegn einelti, um eflingu heimilisiðnaðar og um úrbætur á aðstæðum ungmenna. Flest málanna höfðu ekki áður komið fram og verða vafalaust flutt aftur, því það tekur tíma og mikla þolinmæði að þoka málum til betri vegar í þessu þjóðfélagi. í mai kom svo löggjafarsam- kundan aftur saman að loknum kosningum. Tilgangurinn var fyrst og fremst sá að breyta lögum og þingsköpum til þess að geta haft Alþingi í einni málstofu. Menn notuðu svo auðvitað tækifærið í leiðinni til almennra umræðna um það sem er efst á baugi í stjórn- málunum, evrópska efnahags- svæðið, ráðstafanir nýrra stjórnar- herra í fjármálum rikisins o.fl. í þeim dúr. Þingkonur Kvennalistans, þær Anna Ólafsdóttir Björnsson, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Kristín Einars- dóttir, tóku að sjálfsögðu virkan þátt í þessu öllu, en fjölmiðlarnir eru samir við sig og hafa mestan áhuga á hanaati og hnútukasti „stóru strákanna". Þann draug er erfitt að kveða niður, og því kvarta margar undan því að heyra of lítið af störfum þingkvenna Kvenna- listans. Gaman væri að heyra álit les- enda VERU á því, hvort umfjöllun þingmála eigi aftur að fá inni í VERU eða hvar slík umfjöllun ætti frekar heima. Kristín Halldórsdóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.