Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 7

Vera - 01.08.1991, Blaðsíða 7
HIN HEILAGA FJÖLSKYLDA Mér hefur alltaf fundist ég vera góöur gœi og svo vogaöi hún sér aö vilja skilja viö mig! Eg tók nœstu tvö órin í að reyna aö komast aö því hvaö þaö var sem eyöi- lagöi samband okkar. Kostirnir viö þetta fyrirkomulag eru að geta gefiö sig heill og óskiptur aö börnunum í eina viku, en eiga síöan viku fyrir sjólfan sig til að gera allt þaö sem barnlausir geta gert. Só sem hefur valdiö yfir börnunum notfœrir sér oft aöstööu sína til aö hefna sín ó hinum. Karlmenn eru svo hjólparvana. Þeir róöa ekki viö tilfinningastríö og lóta því börnin af hendi, hœtta jafnvel aö umgangast þau. Arne fór að velta kynhlut- verkunum fyrir sér fyrir fjórum árum þegar hann skildi við konuna sem hann hafði búið með í 12 ár. Það var hún sem átti frumkvæðið, eins og í 80 % allra skilnaða í Svíþjóð. - Ég var svo sem ekkert yfir mig ánægður með hjónabandið, en ég hélt að hjónaband væri ekkert meira en þetta, að það væri einskonar hlutafélag. Ég sá enga útleið og það kom mér alveg á óvart að hún vildi skilja. Mér hefur alltaf fundist ég vera góður gæi og svo vogaði hún sér að vilja skilja við mig! Ég tók næstu tvö árin í að reyna að komast að þvi hvað það var sem eyðilagði samband okkar. Ég vildi kynnast sjálfum mér og læra að reka heimili einn og óstuddur. Hún keypti íbúð í nágrenninu, en ég hélt húsinu og þeim skuldum sem á því hvíldu. Það sem var erfitt var að skipta með okkur börnunum tveimur. Ég gat ekki hugsað mér að verða sunnudags- pabbi, sem er undir annarri manneskju kominn með sam- skipti sin við börnin og er mjólkaður þegar á þarf að halda. Pabbi sem splæsir í hamborgara og bíó, en er með angistarkökk í hálsinum. Það eina sem kom til greina íyrir mig var að við hefðum sameiginlega forsjá með börnunum. Við komum okkur saman um þetta fyrirkomulag, en þó að það sé að verða æ algengara í Svíþjóð voru viðbrögð umhverf- isins samt þau að þetta hljómaði svo sem ágætlega, en gengi aldrei. Að börn þyrftu að eiga eitt heimili. En börn þurfa ekkert að eiga eitt heimili. Okkar reynsla af því að hafa börnin sína vikuna hvort er alveg ljómandi bæði fyrir börnin og okkur. Auðvitað er best fyrir börnin að hægt sé að viðhalda hjónabandinu, en það er ekki alltaf hægt. Það er um kílómetri milli heimilanna og börnin eru saman eina viku hjá henni og þá næstu hjá mér. Þau eiga herbergi, föt og leikföng á báðum stöðunum, að vísu lítið á hvorum stað. Það hefur verið mjög gefandi fyrir mig að sjá einn um börnin þegar þau eru hjá mér. Ég verð að gera ýmislegt, sem ég áður lét mömm- una sjá um, ég verð t.d. að sjá um öll samskipti við dagheimilið og skólann og hugsa um fötin þeirra. Reyndar hef ég grisjað fataskáp- inn mikið, en konum hættir til að dúlla óþarflega mikið með fötin. Ég á miklu auðveldara með að sýna börnunum blíðu þegar mamma þeirra er ekki með. Þá get ég gert það á minn hátt, ég get gefið þeim þá parta af mér sem ég sjálfur vil gefa og haft þau áhrif sem ég sjálfur vil. í okkar tilfelli hefur þetta fyrirkomulag ekki haft teljandi tilfinningaleg vandamál í för með sér, heldur frekar praktísk. Kon- an mín fyrrverandi á t.d. ekki bíl og strákurinn getur orðið pirraður ef hann þarf að láta skutla sér eitthvað. En hann kemur þá bara til mín og ef dóttirin saknar mömmu sinnar þá fer hún til hennar. Forsenda þess að frá- skildir foreldrar geti haft sam- eiginlega forsjá með börnunum er sú að þeir geti talað saman. Þvi má aldrei gleyma að einu sinni upplifðum við eitthvað fallegt og gott saman. Ég er ekki alveg sáttur við okkar samband eftir skilnaðinn. Mér íinnst við ennþá vera að reyna að hefna okkar hvort á öðru. Ég hef mikinn hug á þvi að fá hlutlausan aðila til að hjálpa okkur að tala um þetta, svo að við getum gert upp okkar reikninga og haldið lílinu áfram með bókhaldið í lagi. Fjárhagslega hefur skilnað- urinn ekki verið okkur vandamál. Við höfum hvort sitt barnið skráð hjá okkur, þannig að við skiptum með okkur barnabótum og öðru slíku. Húsinu og skuldunum hélt ég, en hún keypti íbúð og fékk stóran hluta innanstokksmuna. Við teljum okkur vera kvitt og þurfum ekkert að ræða peninga- mál. Kostirnir við þetta fyrirkomu- lag eru að geta geíið sig heill og óskiptur að börnunum í eina viku, en eiga síðan viku fyrir sjálfan sig til að gera allt það sem barnlausir geta gert. En þegar krakkarnir eru að fara frá mér eftir vikuna, fæ ég samt alltaf hnút í magann, ég ræð ekki við það. Þegar karlmenn skilja missa þeir oft sambandið við sinn eina vin. Þeir missa börnin og heimilið, sem þeir hafa lagt mikið í og líta kannski á sem lífsverk sitt. Meðlagið er þeim oft mikil íjárhagsleg byrði, en það sem fer verst með flesta er það að þeim finnst þeim hafa mistekist. Skilnaðurinn er merki um mistök þeirra. - Sá sem hefur valdið yfir börnunum notfærir sér oft að- stöðu sína til að hefna sín á hinum. Karlmenn eru svo hjálp- arvana. Þeir ráða ekki við tilflnn- ingastríð og láta því börnin af hendi, hætta jafnyel að umgang- ast þau. Karlar og konur þarfnast hvers annars alveg ótrúlega mikið. Hjón verða að geta verið vinir og sýnt hvort öðru virðingu í návist barnanna. Rifrildi mega ekki enda þannig að karlinn slái í Arne Torikka, sœnskur tceknimaður sem talar um tilfinningar í tómstundum. 7

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.