Vera - 01.08.1991, Qupperneq 17
HIN HEILAGA FJOLSKYLDA
BOÐSKAPUR
KIRKJUNNAR
Á ERINDI
VIÐ ALLA
Sveinbjörg Pálsdóttir, tæplega þrítugur guðfræðingur, er
nú við doktorsnám við háskólann í Bamberg í Þýskalandi.
Þar leggur hún stund á kennimannlega guðfræði (pastoral
theology), með áherslu á sálgæslu og þá sérstaklega
fjölskyldu- og hjónabandsráðgjöf. VERA hitti Sveinbjörgu
að máli þegar hún kom í stutt frí til landsins í sumar til að
forvitnast um nám hennar og spjalla um lifið og tilveruna.
„Þegar ég lauk embættisprófl í guðfræði frá Háskóla
íslands árið 1988 var ég staðráðin í að fara i framhaldsnám
í guðfræði. Ég var þó ekki búin að ákveða endanlega, hvaða
svið innan guðfræðinnar yrði íyrir valinu. Sama haust fór
ég ásamt eiginmanni mínum til dvalar í ísrael, þar sem við
bjuggum næstu tvö ár. Maðurinn minn fór í framhaldsnám
í Gamlatestamentisfræðum við hebreska háskólann í
Jerúsalem, en ég hóf nám í hebresku við sama háskóla,
enda er það lykillinn að frekara námi þar í landi.
Dvöl okkar i ísrael var spennandi og viðburðarik, en á
sama tíma átakamikil. Við kynntumst þar gjörólíkum
menningarheimi. Mikil vestræn áhrif eru fyrir hendi í
ísrael, en þrátt fyrir það er hugsunarháttur fólksins og
menning frábrugðin. Jafnframt ríkir mikil spenna, vegna
átaka Gyðinga og Araba, sem snertir að sjálfsögðu allt
daglegt líf fólksins. Þessi spenna er mismikil og þá um leið
óróleikinn sem henni íylgir, en við lærðum að lifa við
þessar aðstæður að svo miklu leyti sem slíkt er mögulegt.
Ástandið þarna austur frá hefur verið, og er, ógnvænlegt
eins og allur heimur veit. í framhaldi af innrás íraka inn í
Kúvæt í ágúst síðastliðnum, fannst okkur við þurfa að
endurskoða afstöðuna til frekari dvalar í ísrael. Á þeim
tíma höfðum við einnig eignast dreng og ekki síst hans
vegna ákváðum við að flytjast þaðan.
Nú höfum við komið okkur fyrir á nýjum stað sem hefur
tekið vel á móti okkur. Óneitanlega hefur Þýskaland upp á
mikið að bjóða á sviði guðfræðinnar. Því reyndist nrér
auðvelt að finna það nám sem ég í nokkurn tíma hafði
verið að velta fyrir mér. Doktorsnám mitt í kennimannlegri
guðfræði er afar áhugavert. Ég kem til með að leggja megin
áherslu á sálgæslu og þá sérstaklega fjölskyldu- og
hjónabandsráðgjöf. Námið móta ég að mestu leyti sjálf, en
að sjálfsögðu í samráði við kennara minn sem er þýskur
prófessor í kennimannlegri guðfræði. Guðfræðideildin er
kaþólsk og gefur það mér tækifæri til að skoða guðfræðina
frá annarri hlið en ég hef átt að venjast.
Mér flnnst gleðilegt að íjölskylduráðgjöf kirkjunnar sé
að líta dagsins ljós. Ekki aðeins vegna þess að þörfin fyrir
slíka ráðgjöf er mikil, heldur einnig af þeirri ástæðu að með
henni finnst mér kirkjan sýna skilning á hlutverki sínu. Á
undanförnum áratugunr hefur orðið ör breyting á
jijöðfélagsgerð okkar. Presturinn og kirkjan í heild sinni
jrurfa að skoða þessar breytingar og vera tilbúin til að
nræta þeim. í framhaldi af þessu, þá flnnst mér mjög
jákvætt að starfssvið prestsins er ekki lengur einungis
bundið við sóknarprestsembættið heldur eru þó nokkrir
prestar farnir að starfa á ýmsum stofnunum, t.d. á
sjúkrahúsum og hjá félagsmálastofnun.
Ég er sannfærð unr að boðskapur kirkjunnar á erindi
við okkur, óháð þeim aðstæðum senr við lifunr við. Og
sjálfsagt hefur þörf okkar fyrir boðskapinn aldrei verið
meiri en nú. Það sjáum við ef við nemunr staðar og lítunr í
kringum okkur. Það er svo auðvelt að vera upptekinn af
amstri hversdagsins og álíta að lífshamingjan felist t.d. í
öllu því senr hægt er að kaupa. Ég hugsa stundum nreð
sjálfri nrér, að ég hljóti að vera að missa af einhverju, af þvi
að ég er i námi erlendis, en ekki hér heima að vinna mér
fyrir húsi og jeppa. Og sjálfsagt nryndi hugur nrinn hvarfla
að einhverju öðru sem ég teldi mig vera að missa af, ef ég
væri hér heima að vinna. í hjarta mínu veit ég, að þetta er
ekki jrað sem öllu máli skiptir, það sem veitir mér
hamingju. Þegar ég tala á þessunr nótunr á ég alls ekki við
það, að veraldlegir hlutir eigi ekki að skipta okkur nráli.
Þeir nrega bara ekki taka yfirhöndina, verða það sem
lífshanringja okkar byggir á. Trúin á Guð, þann Guð sem
Jesús Kristur birtir okkur og kirkjan boðar, hefur í för með
sér nýja lífssýn. ný gildi. Fyrir þá trú höfum við nröguleika
á að öðlast innri frið og sátt og sjá tilgang með þessu lífi
okkar. Með því að elska Guð og breyta eftir vilja hans og
elska náunga okkar erum við á réttri leið til betra lífs, og
unr leið betri heims."
GG
Sveinbjörg Pálsdóttir. Ljósm. Guölaug Gísladóttir
17