Vera - 01.08.1991, Qupperneq 39
ÚR LISTALÍFINU
upphátt íyrir mlg eins og
vanur upplesari, skýrmælt og
ömgg.
Seiður vorsins
Og enn er komið vor með
daðri, kitlum og hlátrum.
Aftur rumska veturlúnir
draumar
á ísa köldu landi.
Strcetin streyma lífsglöð fram
heit og rjóð
á stuttbuxum í strigaskóm
slafrandi ís.
Hornin hvísla feimin
„hittu mig í kvöld".
í hverju höfði
bcerist hjartljúfur draumur
án orða.
Æ, elsku kallinn, nú verður
nnútter alveg óð
síðasti strcetó á förum
og engin fleiri böll í sumar.
Æ, nú verð ég að þjóta.
Og sundin stynja af raun
yfir uppeldisins óbcerilegu
kvöðum.
Ó að ég vceri tuttugu og eins
og það strax í gœr.
Góður Guð, hans sonur og allir
himinsins englar.
Blessa náðugur vort
einingarband
um eilífð alla
svo amstur og sút fái eigi
sundrað
að ást og friður ríki um alla
framtíð
á köldu ísa landi.
Sólin var enn hátt á lofti þegar
ég kvaddi Oddnýju. Hlátra-
sköll frá krökkum í fótbolta og
ilmur af nýslegnu grasi lá í
loftinu. Og ég er ekki frá því að
ljóðin hennar standi mér nær
en áður. Þau lifa eins og
sólargeislar, sem geta auðveld-
lega brætt hvert mannshjarta.
GG.
TÖFRAGARÐURINN
í NEW YORK
Man einhver eftir sögunni
um Mary Lennox sem missti
foreldra sína í kólerufaraldri
á Indlandi og var send til
kaldlynds móðurbróður í
Englandi? Þar uppgötvaði
hún að hún átti frænda sem
var jafnvel spilltari af dekri
en hún og hafði líka alist upp
við ástleysi foreldra. Hún
fann einnig Töfragarð, eign-
aðist vini í þjónustustúlk-
unni Mörtu og Dickens
bróður hennar og fór smám
saman að hugsa um eitthvað
annað en sjálfa sig og varð
hamingjusöm. Þessi bók eftir
Prances Hodgson Burnett,
sem kom út á Akureyri árið
1946, var ein af mörgum í
bókakassa sem amma sendi
okkur systrunum fyrir
rúmum tuttugu árum, okkur
til ómældrar ánægju. í fyrra
las ég Töfragarðinn aftur, nú
fyrir systrabörn mín og ég
uppgötvaði að töframáttur
hans er hinn sami.
Síðastliðið vor var söng-
leikur byggður á Töfragarðin-
um frumsýndur á Broadway í
New York. Hann fékk mis-
jafna dóma en var tilnefndur
til fjölda verðlauna. Það
merkilega við söngleikinn er
hve margar konur koma þar
við sögu. Marsha Norman
(sem skrifaði Nótt Móðir sem
sýnt var í Þjóðleikhúsinu
fyrir nokkrum árum) skrifaði
handritið og söngtextana,
Lucy Simon samdi tónlistina,
Susan H. Schulman leik-
stýrði og Heidi Landesman
gerði leikmynd. Haft er eftir
Susan Schulman að ef henni
mistækist með verkið fengi
engin kona tækifæri til að
spreyta sig á Broadway
næstu tíu árin. Uppselt var á
allar sýningar á meðan
útsendari VERU var í New
York en ef einhver lesandi sér
söngleikinn væri gaman að fá
umsögn.
RV
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Stuölahálsi 2 - Reykjavík
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur kaupum og sölum.
Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV,
hinu ótrúlega markaöstorgi taekifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...27022
Viö birtum...
Þaö ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er i Þverholti 11.
Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
a ER SMAAUGLÝSINGABLACHÐ
39