Vera - 01.06.1997, Síða 19

Vera - 01.06.1997, Síða 19
Ei ;\ £juj;iui'j;\;iÍJ=iii'JhUD;\u=JLLi pu ;í= /;u;\'jííiu;í uu uú3=i'jr ■\UrJLU >J;\3ilÚJjyÍ3L;\i'JU3. y IA BJÖRG ARADj HJÚKRU PÁLMI V. JÓIUSSI iRFRÆÐIIMGUR, VERKEFIMISST* IIMGAR Á VEGUM LAIMDLÆKIMII IGÐISRÁÐUIMEYTISINS. V/IÐ LÆKIMi „...SERSTAKLEGAl BORINI, UIMGLIIMGSSTÚLKUR OG KOIMUR EFTIR MIÐJAIM ALDUR“ Kalkið er sérlega mikilvœgí fyrir börn á meðan beinin eru að vaxa, unglings- stúlkur og konur um og eftir miðjan aldur. Beinþynning herjar einkum á konur sem komnar eru yfir tíðahvörf. Unglings- stúlkum og ungum konum er þó einkar mikilvœgt að gœta vel að heilsu beina sinna, þar sem styrkleiki beinanna við upphaf tíðahvarfa rœður miklu um það hversu alvarlegt vandamál beinþynn- ingin verður. Samkvæmt könnunum Manneldisráðs fær fjórða hver unglingsstúlka minna en ráðlagðan dagskammt af kalki daglega. Þessar stúlkur verða að teljast ( sórstökum áhættuhópi hvað snertir beinþynningu síðar á lífsleiðinni. Til þess að forðast beinþynningu síðar á lífsleiðinni virðast holl hreyfing og rótt mataræði þau ráð sem best duga. Nægileg mjólkurneysla nú getur borgað sig margfalt sioar á lífsleiðinni. Hvað er beinþyntiing? Beinþynning er alvarlegt heilsufarsvandamál hér á landi eins og víða annars staðar. Beinin verða stökk, hryggjarliðir geta fallið saman og önnur bein brotna við minnsta átak. Lærlegg, mjaðmarbeini og beinum í fram- og upphandlegg stafar sórstök hætta af beinþynningu. Talið er að þriðja hver kona fái einkenni beinþynningar einhvern tíma á ævinni, en sjúkdómurinn er meira en þrisvar sinnum algengari hjá konum en körlum. Rannsóknir á beinþóttni og brotatíðni benda til þess að hér á landi verði 1200-1500 beinbrot ár hvert vegna beinþynningar. Þar af verða um 200 mjaðmarbrot. Flest þessara brota verða við óverulega áverka. Smábeinóttar og grannvaxnar konur hafa meiri tilhneigingu til beinþynningar en þær sem þéttari eru á ALDUR 30 50 70 VellÍ. Kalkmagn í beinum Beinin í líkamanum eru lifandi vefur sem er í stöðugri þróun alla ævi. Við fæðingu innihalda beinin um 25 g af kalki. Kalkmagnið eykst jafnt og þétt í uppvextinum og nær hámarki í kringum 25 ára aldur. Á þessum aldri eru um 1200 g af kalki í beinum karlmanna en um 900 g í beinum kvenna. Eftir það fer kalkmagn beinanna hægt minnkandi í fyrstu en kalktap (beintap) getur orðið mjög ört, einkum meðal kvenna. Eftir tíðahvörf verður hratt tap á beinmassa, 15-20% á fyrstu 8-10 árunum. Eftir það hægir nokkuð á beintapinu sem heldur þó áfram ævilangt. Konur um sjötugt hafa að meðaltali aðeins um 650 g af kalki f beinum sínum. Hvað er til ráða? Beinþynning er líklega að hluta til arfgengur kvilli og ræðst öðru fremur af minnkandi framleiðslu kvenhormónsins estrógens. Engu að síður benda rannsóknir til þess að þeim mun meira sem líkaminn fær af kalki á lífsleiðinni, því minni só hættan á alvarlegri beinþynningu. KáOlagBur dagskammtur af kalki ag D-vítamíni l-IOára 11-19ára 20ára ogeldh Bamshafand konurog bqóstamæður Dvttamtn: 400 ao (Wjjg) 400 æ 400 æ 400 æ Kalk: 800 mg \ 1200mg 800 mg 1200 mg Morgir sórtrœðingar tolja að kalkþört kvonna ettir tíðahvört só 1200-1500 mg. Rótt eins og vöðvar og aðrir lifandi vefir, styrkjast beinin við notkun. Hreyfingarleysi eykur líkurnar á beinþynningu en einnig hafa reykingar, ofneysla áfengis og óhófleg kaffidrykkja verið sett í samband við þennan illvíga sjúkdóm. Mjólk út ígeiminn? Geimfarar eiga á hœttu að tapa miklu kalki á ferðum sínum út fyrir gufuhvolfið. Þegar þyngdaraflið hœttir að valda stöðugu álagi á beinin þurfa þeir að eyða miklum tíma í sérstakar líkamsœfingar til þess að forðast bráða beinþynningu af kalkskorti. Sem betur fer nœgir okkur á jörðu niðri að stunda hœfilega heilsurœkt, borða hollan mat og drekka nóg af mjólk! 70% af kalkinu úr mjólkurvörum I baráttunni við beinþynningu er einfaldasta vopnið þó líklega að halda kalkbúskap líkamans í góðu lagi. Líkaminn nýtir að jafnaði einungis um 30% af því kalki sem hann fær en rannsóknir sýna þó að nýting kalks úr mjólk og mjólkurmat er mun betri en nýting kalks úr flestum öðrum fæðu- tegundum. Fyrir utan kalkið sjálft er D-vítamín líkamanum nauðsynlegt, en eitt af hlutverkum þess er að auka nýtingu kalks úr fæðunni. Um 70% af því kalki sem við fáum úr faeðunni kemur úr mjólk og mjólkurmat. í franskri rannsókn sem gerð var árið 1992 fékk hópur kvenna yfir 80 ára aldri daglegan auka- skammt af kalki (1200 mg) og D-vítamíni (800 ae). Meðal þeirra fækkaði lærbrotum um rúmlega 40% miðað við sambærilegan hóp sem fékk hvorki kalk nó D-vítamín. Aðrar rannsóknir benda til hliðstæðra áhrifa meðal kvenna á aldrinum 60-80 ára. Fitusnauð mjólk og léttar mjólkurvörur henta því flestu fólki alla ævi. lAtum beinagrindina eldast með líkamanum, ekki á undan honum! Hetstu heimildir M. Chapucy o.H.: VAamm Dj and cakáum to prevent hip fractures in etderty women, Now Engtand Joumal of Meckane 327, 1992. Dawsort-Hughæ o.fl.: A caitrolod tnui ofthe oltect of cataum supptomentaton on bone density in postmenopausal womon, New Ertgland Joumal of Medicirte 328, 1993. Landlajknisembættiö. Laufey Steingrimsdótlir o.fl.: Hvað bordar Islonsk æska? (Manneldisráö Islands, 1993). TVÖ\ | Á DAG - -atta œvi! fr^MJÓLK ER GÖÐ VÍJJ* ÍSLENSKUR MJÓLKURIONAÐUR

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.