Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1972, Side 4

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1972, Side 4
52 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ uðu óskaplega hér á íslandi um þær mundir. En konurn- ar héldu áfram, þannig að árið 1927 stofnuðu þessar sömu konur ungbarnaeftirlitið og ári síðar þ. e. árið 1928 stofn- uðu þær mæðraeftirlitið. Þessi starfsemi bjó við þröng- an kost allt fram til ársins 1949 að Mæðraeftirlitið var flutt í Fæðingardeild Landspítalans, sem þá hóf starfsemi sína. Ég var á því námsári, sem þessi merku tímamót áttu sér stað og man glöggt starfsaðstöðuna í ,,Líkn“ og nýju starfsaðstöðuna í Fæðingardeildinni. Ég hugsaði til þess þá og hefi hugsað til þess oft síðan að líklega hafa hinar stórhuga konur frá 1915 ekki verið hafðar með í ráðum þegar arkitektarnir lögðu drög að og byggðu Mæðraeftirlitið — því, þröngt var setið. Ég man marga góðviðrisdaga sumarið 1949, en þeir voru mjög margir það sumar, að mæðurnar sátu úti á túni því aðeins fáar kon- ur komust inn í litlu biðstofuna. Við nernarnir sátum þá oft hjá þeim úti og röbbuðu við þær og urðum um margt fróðari. Eðlileg og blessunarrík samskipti, sem gott er að minnast. Árið 1954 hóf svo Heilsuverndarstöðin starf- semi sína og stuttu síðar flutti mæðraeftirlitið þangað. Allt fram til þess tíma er mér sagt að hinar hugdjörfu og hjartahlýju konur frá 1915 hafi staðið undir öllum kostnaði við mæðraeftirlitið. Mæðraskoðunin er margþætt. Hér í Reykjavík fer hún þannig fram: Eftir 4 mánaða meðgöngutíma er ætlast til að konan mæti einu sini í mánuði til eftirlits. Síðasta mánuð meðgöngutímans einu sinni í viku. Tekin er heilsufarsskýrsla. Blóð til blóðflokkunar o. fl. Ytri grindarmál (sumstaðar sleppt). Gegnumlýsing (sum- staðar, ekki álitin æskileg). Tekin hæð legbotns. Hlustuð fósturhljóð. Þvagprufa tekin, sérstaklega til þess að athuga eggjahvítu og gröft sumstaðar einnig athugað um sykur. Athugað um bjúg. Blóðþrýstingur tekinn og blóðprósenta. Fylgst með þyngdaraukningu konunnar. Ef konan er svokölluð Reshus kona, Rh.neg., er eigin-

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.