Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 8

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 8
88 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ hægt að horfa fram hjá því að lífeðlisfræðilegir þættir spila mikið inn í, samanber hina auknu vakaframleiðslu á meðgöngu. Gott dæmi um þetta er P-pillan, sem talin er geta valdið þunglyndis- köstum. Geðbilun er mjög óalgeng á meðgöngu, jafnvel sjaldgæf- ari en hjá óþunguðum konum i sama aldurshópi. En alvarlegir geðrænir sjúkdómar (geðveiki) hafa tilhneigingu til að koma fram rétt eftir fæðingu. Kæti og þunglyndis-geðsveiflur (Maniodepressiv psykosa) og geðklofi (skizofreni) eru algengari meðal kvenna rétt eftir fæðinguna, en meðal kvenna í sömu aldurshópum. Þessar sinnisbreytingar einkennast vanalega af ranghugmyndum um barnið og fæðinguna. Oft halda þær að barnið hafi dáið eða skipt hafi verið á barni, eða þessi fæðing hafi eyðilagt möguleika þeirra á því að verða ófrískar aftur. Þessar geðsveiflur byrja gjarnan á fyrstu viku eftir fæðingu. Horfur í þessum geðveikiköstum eru betri en undir öðrum kring- umstæðum, þó getur þessi sjúkdómur verið langvarandi, sérstak- lega ef hann hefur einkenni geðklofa. Eftir könnunum að dæma, virðast þær konur sem verða geðveikar og sýna meiri einkenni, ná sér betur eftir á, en þær sem minni einkenni sýna. Meðhöndlunin er sú sama og í öðrum tilfellum, en það er einnig nauðsynlegt að meðhöndla þessar konur með andlegri aðhlynn- ingu. Hræðsla og verkir eru alltaf samtengd og segja má að for- eldrafræðsla hafi geðverndandi áhrif bæði um meðgöngutímann, í fæðingunni og sængurlegunni. Gott er að upplýsa hina verðandi foreldra um gang fæðingar og það sem gerist eftir að komið er inn á fæðingastofnun. Nauðsynlegt er að kenna konunum öndunar- æfingar og slökun, og fræða þær um breytingar sem verða á líkamanum, t.d. brjóstum o.fl. Ráðleggja heilbrigt matarræði og gefa fræðslu um þarfir hins nýja einstaklings. Þessi geðverndandi þáttur mæðraverndar nær bestum árangri ef sú ljósmóðir sem frætt hefur konuna á meðgöngu er líka viðstödd fæðinguna, en af skiljanlegum ástæðum er þetta yfirleitt óframkvæmanlegt nema á litlum fæðingarstofnunum. Þar af leiðandi er nauðsynlegt að sama ljósmóðirin og nemi séu með konuna alla vaktina, til að geta náð sem bestu sambandi við hana. í könnunum er þvi lýst að kon- um finnst fæðingin ekki eins sársaukafull hafi þær náð góðu sam-

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.