Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Síða 10
90
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Hér á eftir fara tvö erindi, flutt af Benedikt Sveinssyni lækni
og Jónínu Ingólfsdóttur Ijósmóður á ráöstefnunni, sem
haldin var í maí sl. um mæðravernd og nýburaþjónustu.
Benedikt Sveinsson, aðstoðarlæknir
Kvennadeild Landspitalans:
Notkun lyfja,
áfengis og tóbaks
á meögöngutíma
Á hverju ári streymir fjöldi nýrra lyfja inn á markaðinn.
Læknatímarit eru full af glæstum lyfjaauglýsingum. Bréfalúgur
og skrifborð lækna eru hlaðin bæklingum um gömul lyf og ný.
Lyfjafyrirtækin keppast um að koma lyfjum sínum á framfæri,
og er þar engu til sparað.
Lyfin renna líka út. Um það sjá kvillar mannanna. Hver sér
ekki fyrir sér biðstofu fulla af kvartandi fólki, og læknir í tíma-
hraki og hálfgerðu úrræðaleysi, rétta lyfseðil yfir borðið.
Já, svona gengur það fyrir sig. Við treystum, að þær upplýsing-
ar, sem við höfum um lyfin og okkar cliniska mat sé rétt. í þessu
trausti ávísum við lyfjum. Stundum með árangri, en stundum
miður. En erum við alltaf nægjanlega meðvituð um, á hvern, eða
hverja við ávísum lyfjum? Hafið þið hugleitt, að í hvert skipti,
sem lyfi er ávísað á konu á frjósemisskeiði, er sá möguleiki fyrir
hendi, að hún sé ekki ein um neysluna. Hafi ykkur láðst að spyrja
um seinustu tíðir og ganga úr skugga um, hvort hún sé eða geti
verið ófrísk er vá fyrir dyrum. Því að um lyf og fóstur gilda aðrar
og flóknari reglur en um fullorðna.
Saga rannsókna á þessu sviði er órtúlega stutt. Allt fram til
ásins 1940 var það trú manna, að fóstrið væri dyggilega verndað í