Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Page 13
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
93
Sambandið milli reykinga móður og fósturláta, lágrar
fæðingarþyngdar, styttri barna, dauða barna rétt fyrir, í og eftir
fæðingu, fyrirburðafæðinga, fylgjuloss, fyrirsætrar fylgju,
snemmkomins vatnsmissis og lélegri Apgars. Perinatal dauði
virðist í hlutfalli við það magn sem reykt er. Að öðrum forsendum
jöfnum (aldur, barnafjöldi, kynstofn, félagsaðstæður) er 20%
meiri hætta á perinatal dauða hjá þeim sem reykja 5=1 pakka á
dag og 36% hjá þeim sem reykja pakka á dag. Vitað er að
tíðni hjartagalla hjá fóstrum stórreykingakvenna er tvöfalt meiri
en hjá þeim sem ekki reykja. Allt að 10% blóðrauða þessara
barna er bundið carboxy-efnum, sem þýðir minni súrefnisflutning
hjá fóstrinu, sem að sjálfsögðu táknar hættuástand. í ljósi þessa
er það skylda okkar læknanna, að hvetja ófrískar konur, ekki
aðeins til að draga úr reykingum, heldur hætta þeim með öllu
meðan á meðgöngu stendur. Þær konur sem neyta 600 mg
caffeine á dag, hafa hærri tíðni fósturláta og fyrirburðafæðinga.
Þeir sem drekka mikið kaffi neyta allt að 1—3 gr á dag.
Um ávana- og eiturlyf á borð við hass og LSD er erfitt að
dæma, þar sem þær konur, sem neyta þessara lyfja hafa og eða
taka fleiri lyf og efni samtímis. LSD er þó talið teratogen.
Sýklalyf
Fá lyf eru trúlega gefin ófriskum konum jafn oft og sýklalyf,
alla vega í byrjun meðgöngu. Öruggast þessara lyfja er Penicillin
og skyld sambönd, Ampicillin, Amoxil og Cloxacillin. Enda þótt
þessi lyf komist auðveldlega í gegnum fylgjuna yfir til fóstursins,
hefur ekki tekist að sýna fram á nein slæm fósturáhrif, og ætti
Penicillin eða Ampicillin að vera sýklalyf nr. 1, 2 og 3 hjá ófrísk-
um konum. Ef um Penicillinofnæmi eða svæsnar sýkingar er að
ræða má nota Erythromycin, Cefalosporin, Centamycin eða
Colistin í stuttan tíma. Einnig er Nitrofurantoin talið skaðlaust
við minni háttar þvagsýkingum.
Sýklalyf sem hins vegar ekki má nota á meðgöngu eru:
Öll Tetracyclinafbrigði, er þau hafa slæm áhrif á bein- og tann-
gerð, geta valdið cataracta hjá fóstri og leitt til lifrar- og nýrna-
sjúkdóma hjá móður.