Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 15
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
95
aukið á verkun sterkari verkjalyfja sem notuð eru við sjálfa
fæðinguna.
Nýrnaskemmdir hafa komið fram hjá börnum mæðra sem
neyttu mikils af Paracetamoli (Panadil-acetoaminophen) á með-
göngu og er lyfið því varhugavert.
Indometazin er prostaglandin mótvaki eins og Aspirin og var
einu sinni reynt til að koma í veg fyrir fyrirburðarfæðingar.
Útkoman var slæm og dauðatalan há, en börnin reyndust hafa
pulmonary háþrýsting þegar lyfið var gefið skömmu fyrir
fæðingu.
Geðlyf
Ekki mun mikið um að ófrískar konur noti geðlyf á síðari hluta
meðgöngu nema ríkar ástæður liggi að baki. Hins vegar má ætla
að ýmiss byrjunareinkenni óvitaðrar meðgöngu kalli á róandi,
kvíðastillandi eða þunglyndislyf og verðum við læknar alltaf að
vera vel á varðbergi í þessum efnum.
Mest notuðu lyfin eru eflaust Benzodiazepam og skyld
sambönd. Þau eru talin Teratogen. Hjá börnum mæðra sem taka
þessi lyf er hærri tíðni á klofinni vör og góm og miðtaugakerfis-
göllum. Sé lyfið tekið á síðari hluta meðgöngu, má búast við
erfiðari fæðingu, vesælli börnum, sem þarfnast endurlífgunar og
langvinns eftirlits en slappleiki (hypotonia) getur varað í allt að
9—12 mánuði eftir fæðingu. Skjót fráhvarseinkenni geta og kom-
ið fram skömmu eftir fæðingu, þau lýsa sér með krömpum, óróa,
hækkuðum blóðþrýstingi og kröftugum reflexum. Þessi einkenni
geta varað vikum saman.
Tricyclisk þunglyndislyf eru talin lítið teratogen og er því full-
réttlætanlegt a gefa þau á meðgöngu, séu cliniskar ástæður fyrir
hendi. Þau leiða hins vegar stundum til vanda eftir fæðingu, sem
lýsir sér með öndunarerfiðleikum, bláma, óróa og sogvandamál-
um. Einnig geta þau eins hjá fullorðnum leitt til þvagteppu.
Fentiazin (Chlorpromazin og skyld efni) gefin á meðgöngu geta
leitt til extrapyramidaleinkenna hjá nýburum, sem geta varað í allt
að 9 mánuði. Þessi lyf eru eins og tricyclisk þunglyndislyfin ekki
talin teratogen.
Notkun barbitursyra eru nú mjög á undanhaldi. Þessi lyf eru
ekki talin teratogen og hafa tiltölulega lítil áhrif á fóstrið, til