Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Side 18
98
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
vegar er meðfædd skjaldkirtilsstækkun eða vanstarfsemi á skjald-
kirtli vel þekkt hjá nýburum mæðra, sem tekið hafa and-skjald-
kirtilslyf og joð-sambönd á meðgöngu. Thiourea-lyfin eru mikið
notuð gegn ofstarfsemi skjaldkirtils á meðgöngu. Þessi lyf komast
greiðlega í gegnum fylgjuna og leiða til vanstarfsemi skjaldkirtils
hjá fóstrum, sem síðan leiðir til skjaldkirtilsstækkunar
(compensatory goiter). Hægt er að fyrirbyggja kreatinismus hjá
fóstrum með góðu eftirliti móður og eins lítilli gjöf lyfsins eins og
framast er unnt. í flestum tilfellum eru börn þessara mæðra eðli-
lega greind og hæð og beinaldur í lagi sé framangreindum ráðlegg-
ingum fylgt. Þessi lyf eru talin litlir teratogenar. Ólífrænt joð
(óbundið) hefur verið notað til lækningar á skjaldkirtilsofstarf-
semi og eins sem slímlosandi efni í hóstasaft. Það kemst auðveld-
lega í gegnum fylgjuna, getur valdið risastækkun á skjaldkirtli
fóstra og leitt til kreatinismus. Geislavirkt joð er stranglega
bannað að gefa ófrískum konum vegna hættu á kreatinismus hjá
fóstrum.
Þau lyf sem notuð eru gegn sykursýki, Insulin og lyf til inntöku
er erfitt að meta, þar sem sjúkdómurinn sem þau eru notuð gegn
er svo alvarlegur og hefur það víðtæk fósturáhrif. Almennt er þó
talið að þessi lyf séu fóstrum hættulítil og mun hættuminni en
sjúkdómurinn ómeðhöndlaður.
Oxytocin (Syntocinon), heiladingulshormón, sem notað er til
að koma af stað legsamdrætti eða örva hann i fæðingu, getur leitt
til hyperbilirubinemi í stöku tilfella. Eins getur það valdið hríða-
stormi og legbresti sé eftirliti með gjöfinni ábotavant.
Blóðþynningarlyf
Warfarin (Dicumarol) er vítamin-K andefni, sem leiðir til lækk-
unar á storkuþáttum II, VII, IX og X. Það hefur lengi verið vitað
að það kemst auðveldlega í gegnum fylgjuna. Skaðsemi þess fór
smátt og smátt að koma í ljós upp úr 1960, er farið var að skipta
um hjartalokur og setja sjúklinga á þetta fast eftir aðgerðir til að
fyrirbyggja blóðsega. Síðan hefur fjöldi kvenna á þessu lyfi fætt
börn. 1975 var svo lýst Dicumarol syndromi hjá nýburum mæðra
á þessu lyfi. Lyfið er skaðlegt á öllum tímum meðgöngu.
Heparin er á hinn bóginn risamolikúl, sem ekki kemst gegnum