Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Síða 19

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Síða 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 99 fylgjuna og er því eina blóðþynningarlyfið sem er réttlætanlegt á meðgöngu. Blóðþrýstingslyf Það er nú ljóst að blóðþrýstingsmeðferð hjá þunguðum konum með háþrýsting (essential hypertoni), fóstureitrun (pre-eclampsi) gefur mjög góðan árangur, bæði hvað snertir móður og barn. Hins vegar þarf að hafa margt í huga við notkun þessara lyfja. Á kvennadeild Landspítalans er aðallega notað Apresolin og Aldomet og í minna mæli Inderal. Apresolin (Hydralasin) er ekki talið teratogen, og ekki talið hafa nein áhrif á fóstrið. Það eykur blóðflæði um fylgjuna, sem oft er skert við háþrysting eða fóstureitrun. Þessi verkun lyfsins gerir það sérstaklega ákjósanlegt undir þessum kringumstæðum. Helstu aukaverkanir lyfsins á móður eru hraður hjartsláttur, svimi, höfuðverkur, sérstaklega ef lyfjagjöf er aukin of hratt. Einnig ber að vera vel að verði gegn lupes líku syndromi, sem konurnar geta fengið sé lyfið gefið i langan tíma. Aldomet (Methyldopa) er kjörlyf við háþrýstingi á meðgöngu og eins við fóstureitrun, ef Apresolin eitt sér dugar ekki. Það er talið með öllu skaðlaust fyrir fóstrið. Helstu aukaverkanir þess á móður eru sljóleiki, deyfð, saltsöfnun og hægðatregða. Coombs- próf verður líka jákvætt hjá um 10—20% sjúklinga. Inderal og skyld lyf hafa lítið verið notuð við háþrýsting í þung- un hérlendis. Aðeins í stöku tilfella þegar um hefur verið að ræða lífshættulegan háþrýsting eða fóstureitrun, hefur verið gripið til lyfsins á síðari hluta meðgöngu á kvennadeild Landspítalans. Ný yfirlitsgrein um þetta og sambærileg lyf virðist þó lofa góðu, en frekari rannsókna er þörf. Uns frekari vitneskja liggur fyrir, er mælt með því að þungaðar konur með háþrýsting á Inderalmeð- ferð, séu settar á Aldomet í staðinn. Þvagræsilyf (Thiazid og skyld sambönd) hafa mikið verið notuð á meðgöngu til að losa konur við bjúg og eins til að lækka blóðþrýsting eða koma í veg fyrir fóstureitrun. Nú er talið rangt að gefa þunguðum konum þessi lyf, vegna þeirra truflana sem verða á saltbúskap líkamans, og hins að orsök fóstureitrunar virðist fremur of litill en of mikill vökvi í blóðrásinni. Einnig geta þessi lyf orsakað blóðflögufæð hjá fóstrum.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.