Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Page 22

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Page 22
102 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Mikilvægi brjóstagjafar Erindi Jónínu Ingóifsdóttur yfirljósmóður á Akranesi flutt á ráðstefnunni í maí sl. Brjóstagjöf er umræðuefni mitt. Ræði ég því hér á eftir aðal- lega um þann sálræna styrk, sem ljósmæður og fleiri eiga og geta veitt hinni verðandi móður. Nú á tímum hraða og tækni í okkar yfirspennta þjóðfélagi finnum við hve mikil nauðsyn okkur er að geta slakað á, og á það þá ekki sist við um hina verðandi móður. Einn er sá þáttur í 40 vikna meðgöngu, og eftir fæðingu í sængur- legu og eftir að heim er komið, sem ef til vill er ekk nógu mikill gaumur gefinn, en það er brjóstagjöfin. Brjóstagjöf er eðlileg, það gildir sem aðalregla, en samt sem áður getur hún verið undir miklu sálrænu álagi. Staðfest er, þegar talað er um þyngdaraukn- ingu hjá hinni verðandi móður, að hún verði að hafa aukaforða í kílóavís að minnsta kosti 2—3 kíló, en ekki kunnum við ráð til að meta hina sálrænu umframorku, sem konan þarf á að halda. Alla- vega getum við ekki viktað hana. Þess vegna er það ekki síst okkar hlutverk ljósmæðra og lækna, að veita sem bestar upplýsingar hinni verðandi móður, svo að hún og fjölskyldan öll sé sem best í stakk búin að takast á við hið mikla hlutverk sem henni er ætlað, og hvernig gerum við það? Jú, hér verður þó aðeins stiklað á stóru, og ekki hægt að fara út í smáatriði, því tíminn er naumur: Við byrjum á mikilvægi brjóstagjafar, líkamlega, hagkvæmnislega og tilfinningalega. Gerum greinarmun á hvort talað er við frumbyrju eða fjölbyrju. Forðum sektarkennd, ef konan getur ekki af óviðráðanlegum ástæðum haft barn sitt á brjósti. Viðurkennum, að sumum konum þykir vont að hafa barn á brjósti. Hvernig á að hirða brjóst og geirvörtur sem best. Hvernig við örvum mjólkurfram-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.