Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Page 27

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Page 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 107 2. Evrópuþing um fæðingafræði og svæfingar og deyfingar í fæðingu Annað Evrópuþing um fæðingafræði og svæfingar og deyfing- ar í fæðingu verður haldið í Rómaborg dagana 6.—9. apríl 1983. Þingið verður haldið í Aula Magna” (Stóra fundarsalnum) í Pontificia Universitas Urbania, Via Urbano VIII, 16, sem er á Gianicolo hæðinni með útsýni yfir Vaticanið. Þátttökugjald og innborgun á hótelkostnað og lokaveislu skal greiðast í USdollurum. Látið banka sjá um að senda ávísun stíl- aða á „Second European Congress of Obstetric, Anaesthesia and Analgesia”. Útfyllt þátttökueyðublað og þátttökugjald skal sendast til: „Second European Congress of Obstetric Anaesthesia and Analgesia” c/o Wagons-Lits Turismo Via Abruzzi 3 00187 ROME ITALY Fyrirlestrar verða haldnir á ensku, sem verður hið opinbera mál þingsins. Sérstök dagskrá verður á daginn fyrir maka þátttakenda og kvöldprógram fyrir alla þátttakendur ásamt mökum, þar með talin áheyrn hjá Páfa. Frekari dagskipan, (tilhögun dagskrár) verður send þátttakend- um. Þátttökugjald fyrir lokahóf verður 50 dollarar á mann. Ráðstefnugjald er 300 dollarar fyrir þátttakendur, en 150 doll- arar fyrir ljósmæður og sjúkraþjálfara og 60 dollarar fyrir maka. Ef þátttaka tilkynnist eftir 31. des. bætast 20 dollarar við þátt- tökugjald. Vinsamlegast sendið útfyllt þátttökueyðublað sem fyrst og alls ekki síðar en 28.02.82.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.