Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 12
52
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Skipulagt mæðraeftirlit hófst hér árið 1928 er hjúkrunarfélagið
Líkn réði Katrínu Thoroddsen barnalækni til að annast mæðraeftirlit
hjá félaginu. Við getum því haldið upp á 60 ára afmæli skipulegs
mæðraeftirlits á Islandi á þessu ári (1988).
Mæðraeftirlitið í Reykjavík mun hafa farið hægt af stað en á fáum
árum sannað gildi sitt. Arið 1929 munu um þrjátíu konur hafa komið
í mæðraskoðun í Líkn og þar af sextán sem höíðu ekki komið áður.
Árið 1933 var ráðin ljósmóðir að Líkn og sama ár er gefin út ný
ljósmæðrareglugerð. Kom hún í stað reglugerðar frá 1914. Þau ný-
mæli eru í nýju reglugerðinni að meðal starfa ljósmæðra er ,,að rann-
saka vanfærar konur til þess að komast að raun um heilsufar þeirra
í sambandi við þungann og horfur fæðingarinnar.”
Árið 1943 var Pétur H. Jakobsson sérfræðingur ráðinn við mæðra-
skoðun hjá Líkn og var hann yfirlæknir mæðraeftirlits Reykjavíkur til
ársins 1961. Þá tók hann við yfirlæknisstöðu á fæðingardeild Lands-
spítalans. Mæðraskoðun fluttist árið 1949 í nýbyggða fæðingardeild
Landsspítalans. Félagið Líkn greiddi áfram kostnað við mæðravernd-
ina þar til hún flutti í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Sá hluti nýju
Fæðingardeildarinnar sem ætlaður var til skoðunarinnar varð fljótt of
lítill og þegar Heilsuverndarstöð Reykjavíkur var tilbúin í lok árs
1954 var mæðraskoðunin flutt þangað.
Deildarljósmóðir varð Ása Ásmundsdóttir og starfaði þar auk
hennar ein ljósmóðir, einn hjúkrunarfræðingur og tvær afgreiðslu-
stúlkur.
Deildin var í upphafi opin tvær klst. á dag þrjá daga í viku. Að
sögn Guðjóns Guðnasonar læknis sem hóf störf við Mæðradeildina
1959 skapaðist oft mikil ringulreið þar. Einn daginn mætti etv. fjöldi
kvenna en næsta dag örfáar. Fór það oft eftir veðráttu og hvað var um
að vera í bæjarlífinu. Guðjón Guðnason tók við yfirlæknisstöðu af
Pétri H. Jakobssyni 1961. Var þá móttökudögum fjölgað um tvo og
boðið upp á skoðun eftir hádegi alla daga vikunnar. Auk þess var
gerð önnur breyting, ekki síðri, en hún fólst í því að teknar voru upp
tímapantanir og stytti það biðtíma til mikilla muna.
Eftir þessar breytingar virðist ekki ýkjamikið gerast í þróun mæðra-
eftirlits í Reykjavík lyrr en árið 1969. Að vísu eykst mjög framboð
á foreldrafræðslunámsskeiðum en að þeim mun ég víkja sérstaklega
seinna.
Stórt skref var stigið árið 1969 í samræmingu mæðraeftirlits á land-