Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 52
92
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Læknar hafa tekið jákvætt undir að tilraunin verði gerð en hafa sín-
ar efasemdir um gagnsemina. Og þeir taka þátt í að rannsaka áhrif
svæðisnuddsins, þ.e. sýna fram á eða afsanna að svæðisnudd komi að
gagni sem fæðingarhjálp, ella hefðum við ekki getað gert tilraunina.
Tilraunin gengur út á að fá fram vitneskju um áhrif svæðisnudds
við eftirfarandi aðstæður:
1) Til að draga úr verkjum við fæðinguna.
2) Til að örfa hríðir ef þær eru ekki fyrir hendi eftir missi fósturvatns
eða þegar úr þeim dregur.
3) Þegar fylgjan situr föst.
4) Til að koma fæðingu af stað.
Svæðisnuddarinn gengur vaktir. Þannig er ekki sjálfgefið að konur
sem fæða t.d. að nóttu til eigi ekki kost á svæðisnuddi.
Þegar í 36. viku meðgöngu er hinum barnshafandi konum fenginn
kynningarbæklingur um tilraunina. Öllum konum er gefinn kostur á
svæðisnuddi að því tilskildu að Gabriella sé á vakt.
Svæðisnudd sem er ævaforn meðhöndlunaraðferð gengur út á það
að öll líffæri eigi gagnvirkan snertiflöt, einkum undir iljunum. Með
því að þrýsta á þessa snertifleti í lengri eða skemmri tíma í senn má
örva varnarkerfi líkamans til sjálfslækningar. Svæðisnudd verkar
einnig til slökunar og sefar sársauka vegna þess að það losnar um
hömlur líkamans og fólk öðlast innra jafnvægi, segir Gabriella
Bering-Liisberg. Hún hefur lítið beitt svæðisnudd til þessa í sam-
hengi við fæðingar en aftur á móti hefur hún notað það t.d. á konur
sem fá sára tíðaverki eða þegar tíðir hætta tímabundið.
Svæðisnudd hefur fram til þessa komið þrisvar að gagni við að losa
fasta fýlgju.
Ef fylgjan hefúr ekki losnað innan hálfrar klukkustundar má beita
svæðisnuddi jafnframt sem venjulegar aðgerðir eru undirbúnar (blóð-
gjöf, dreypilyf o.s.frv.).
Annað hvort eru áhrif svæðisnuddsins komin í ljós innan hálfrar
klukkustundar eða þau koma ekki. Ef enginn árangur verður innan
klukkustundar er fylgjan losuð á hefðbundinn hátt.
Ef beita á svæðisnuddi til að lina sársauka er áríðandi að nuddarinn
sé kallaður til í góðum tíma, þannig að honum gefist kostur á að kynn-