Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 29
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
69
Stríkkun á leghálsi vegna útvíkkunar
Þensla á neðra segmenti legs
Stríkkun á legböndum
Tog á peritoneum
Þrýstingur á þvagblöðru og þvagrás
Minnkað súrefnisflæði um legvöðvann
Þrýstingur á taugahnúta (nerve ganglion) umhverfís leg og
leggöng.
Sársauki á fyrsta stigi fæðingar er að mestu rakinn til útvíkkunar á
leghálsi, og finnur konan venjulega mest fýrir honum í neðra hluta
kviðs og mjóbaki. Ef verkurinn er mjög sterkur getur konan fundið
til í mjöðmunum einnig og ofar í kvið. Sársauki á öðru stigi fæðingar
er venjulega orsakaður af þenslu í leggöngum og perineum er fóstrið
færist neðar og neðar. Sársaukaboð frá því svæði eru flutt af skyn-
þráðum pudentaltaugarinnar sem fer inn í aftari rót annarrar, þriðju
og fjórðu sacral taugar (10, bls. 626).
Meðferð sársauka í fæðingu
Ymsar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum ýmissa kvalastill-
andi lyfja og eru þar með talin þau lyf sem ekki innihalda nein virk
efni heldur eru aðeins salt og sykurtöflur. Slík lyf eru nefnd „place-
bo” og merkir það orð ,,ég mun þóknast”. Rannsóknir á lyfjum sem
þessum benda til þess að þau hækki ekki skynþröskuld fólks heldur
hafi áhrif á hámarksþol þess. Þar inni eru hinir sálrænu þættir taldir
vera að verki. H.K. Beecher skýrði frá því í Bandaríkjunum að þegar
sjúklingar væru mjög kvíðnir hafi morfín slegið á sársauka í 52% til-
fella en placebo gert saman gagn í 40%. Væri kvíði hins vegar ekki
áberandi stilli þessi lyf sársauka hjá 26% en morfín hjá 84%. Hann
taldi að placebo linaði sársauka um það bil þriðjungs sjúklinga og að
viðmót þess sem lyfið gæfi hefði mikið að segja. (Heimild nr. 17 bls.
30.)
Þetta sýnir á athyglisverðan hátt hve sálarástand sjúklings hefur
mikið að segja í sambandi við sársauka, ekki svo að skilja að hann hafi
gert sér upp sársaukann heldur er slegið á óbærilegan kvíða og hjálp-
arleysi sjúklingsins svo honum verður hugarhægara og hefur það svo
aftur áhrif á aðra líkamsstarfsemi s.s. öndun og blóðþrýsting sem
tengst geta sársaukanum. Þannig er sýnt fram á margvísleg tengsl