Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 28
68
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
opnar hliðið. Þessi hliðbúnaður hefur áhrif á hóp taugunga í mænu-
kylfu sem kallaðir eru T-frumur. Þess betur sem hliðið er opið og því
lengur sem það stendur opið, þeim mun meira magn boða fer í gegn
og nær til T-frumanna. Er virkni þeirra nær krítiskum mörkum er
„pain reaction system” í heilanum ert og einstaklingurinn verður var
við sársauka (sjá mynd nr. 2).
Venjulegt starf substantia gelatinosa er að koma í veg fyrir ertingu
á T-frumunar með því að halda hliðinu að hluta til lokuðu. Þar af leið-
andi hefur erting á substantia gelatinosa þau áhrif að venjulegt starf
er aukið, ennfremur 'okast hliðið sem taugaboðin fara í gegnum. A
hinn bóginn þá hefur hindrun (inhibition) á substantial gelatinosa þau
áhrif að það hægist á venjulegri starfsemi, hliðið opnast og boð fara
í gegn.
Hliðstjórnarkenningin hefur varpað ljósi á búnað til að stilla tauga-
boðin áður en þau eru send áfram til heilans. Taugaboð sem berast
niður til substantia gelatinosa frá heilanum, geta breytt eða takmark-
að taugaboð gegnum áhrif á ,,the gating mechanism” (9, bls.
708-709).
Mikið hefur verið deilt um þessa kenningu, en meginstoðir hennar
standa þó enn. Nú hefur komið í ljós (1975) að miðtaugakerfið fram-
leiðir sitt eigið efni til að slá á sársauka. Þetta efni nefnist endorphine
og verkar eins og morfín en hefur margfalt kröftugri verkun. Þetta
efni virðist draga úr boðstyrkleika á svipaðan hátt og morfín (20, bls.
46).
Sársaukaboð til mænu í fæðingu eru borin af sympatiskum aðlæg-
um taugaþráðum frá legbol, leghálsi, eggjastokkum og liðböndum.
Þessir taugaþræðir eru samtengdir öðrum sjálfráðum taugum legs og
legháls, og mynda s.k. inferior hypogastric plexus. Sérhvert líffæri
líkama okkar er þannig gert að það bregst við sérstöku áreiti í formi
sársauka. Húðin t.d. er varnaryfirborð sem sífellt er útsett fyrir hita-
breytingum. Ef þessar breytingar eru of mikill hiti eða of mikill kuldi
þá verður árangurinn sársauki. Þar sem leghálsinn er venjulega ekki
útsettur fyrir svona breytingum gerði móðir náttúra hann ekki við-
kvæman fyrir þeim heldur þannig að hann bregst frekar við þenslu og
útvíkkún í formi sársauka. Það eru engir sérstakir sársaukaviðtakar í
legbol eða leghálsi en taugaþræðir liggja á víð og dreif í vöðvunum
(1, bls. 11).
Þættir sem áhrif hafa á sársauka í fæðingu eru: