Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 31
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
71
hana, aðstoða við öndun og slökun, samræður um sársauka og með-
ferð við honum, vera hjá konunni og veita henni þannig stuðning með
snertingu og samkennd.
Kona að nafni dr. Joyce Roberts sem menntuð er sem hjúkrunar-
fræðingur og ljósmóðir og stundað hefur vísindalegar rannsóknir tók
eftir því að svörun kvenna við sársauka í fæðingu má í stórum drátt-
um rekja til áhrifa af eigin reynslu þeirra, menningarlegum
bakgrunni, andlegu og líkamlegu ástandi og túlkun þeirra á sársauka.
Það að meta sársauka í fæðingu getur verið erfitt því sársaukinn sem
slíkur er ekki merkjanlegur eða sjáanlegur heldur er það hegðun kon-
unnar og látbragð hennar sem kemur upp um líðan hennar, og um
leið hæfileiki/geta ljósmóðurinnar til að meta sársaukann eftir því.
Sársauki getur lýst sér á ýmsan hátt s.s. minnkuð geta til afslöppunar,
grátur, hraður andardráttur og ákveðnar líkamshreyfingar sem gefa
til kynna hvers kyns er. Verkurinn getur verið vægur eða mjög sterk-
ur og er byggður á ofantöldum þáttum. Roberts sýndi fram á að þján-
ingar í fæðingu má minnka/draga úr á ýmsan hátt. Hjálpa konunni
við að umbera frá byrjun til enda hvern samdrátt fyrir sig og útskýra
það að styrkleiki verkjarins sem slíkur minnkar ekki heldur er það
þol konunnar fyrir sársaukanum. (Heimild nr. 10. bls. 626).
Petidin
Petidin er það lyf sem hvað mest hefur verið notað hér á landi sem
verkja og slakandi lyf í fæðingu. Petidin er verkjalyf sem binst svo-
kölluðum opioid receptonum miðtaugakerfisins þ.e. lyfið hefur f.o.f.
áhrif á miðtaugakerfið með því að hamla þær heilastöðvar sem stjórna
m.a. verkjum og andardrætti. Jafnframt örvast sú heilastöð sem
stjórnar hósta og getur það valdið ógleði og uppköstum. Einnig hefur
petidin þau áhrif að sléttir vöðvar í t.d. meltingarfærum hjarta og
berkjum dragast saman og valda m.a. hægðartegðu.
Hin efnafræðilega samsetning petidins samanstendur af 1 methyl, 4
phenyl og 4 carbethowypiperidine og var það fyrst uppgötvað fýrir
rúmum 40 árum. Fyrstu frásagnir lyfsins birtust í þýskum ritum 1939
og í einstökum enskum bókum 1924 og 1943 og einkenndust þær frá-
sagnir fyrst og fremst af verkja og róandi áhrifum svo og krampa og
„euphoriskum” áhrifum. Verkjastillandi áhrif eftir að lyfinu hefur
verið dælt í vöðva hefjast innan 10 mínútna og eru hámarksáhrif eftir
1 klst. og hverfa alveg á nokkrum klst. Ahrif 100 mg petidins eru