Freyr - 01.07.1929, Page 6
66
P R E Ý tl
lok. Annars skiftist fundurinn i marg-
ar deildir, eftir málefnum, og gátu menn
þá valið eftir þvi sem hverjum best
þótti, hvern fund þeir sátu.
Búnaðarþingið setti A. Rindell pró-
fessor, formaður finsku deildarinnar.
Þar næst hélt forstjóri J. E. Sunila fyr-
irlestur um búnað Finna. Þá skiftist
fundurinn og um 60 fyrirlestrar voru
lialdnir i ýmsum deildum.
I fundarlok hélt eg fyrirlestur um
húnað á Islandi, og sýndi um leið
skuggamyndir héðan. Þá flutti búnaðar-
málaráðherra Finna U. Brandir fyrir-
lestur um Finnland sem búnaðar- og
ferðamannaland.
Þessir tveir fyrirlestrar voru fjölsótt-
astir á búnaðarþinginu. Eftir þá fóru
fram fundarslit og menn skiftust i
flokka, sem dreifðust víðsvegar um
Finnland, til að sjá eitt og annað er
markvert þótti. Eg fór með þeim flokki,
sem ferðaðist fyrst austur og síðan
norðureftir Finnlandi. Sú ferð varaði í
6 daga, og var mikið og margt að sjá
á því ferðalagi. Leiðsögumaður farar-
innar var búnaðarmálaráðherra. Vér
sáum á þessu ferðalagi marga af hin-
um fegurstu stöðum á Finnlandi, heim-
sóttum skóla, tilraunastöðvar, bænda-
býli o. fl. o. fl.
Vér sjáum oss eigi fært að skýra ít-
arlega frá þessu ferðalagi, eða þvi sem
fyrir augun bar á þessari Finnlandsför,
en til fróðuleiks skal hér skýrt frá
nokkrum atriðum viðvíkjandi búnaði
Finna og framkvæmdum síðustu ára.
Finnland liggur á milli 60 og 70° n.-
br. Þannig að nokkru á sama breiddar-
stigi og ísland, en bæði suðurfyrir og
norðurfjTÍr. Stærð landsins er 388 þús.
km.2, þar af 12% vötn. Finnland er því
rúmlega þrisvar sinnum stærra en Is-
land. Af Finnlandi er 6% talið ræktað
land. í Noregi er það 2%, Sviþjóð 8%
og Danmörk 68%. Af Islandi er aðeins
ræktað 0,25%.
Ræktunarskilyrði eru mjög mismun-
andi i Finnlandi. Suðurbluti landsins er
vel fallinn til ræktunar, í sumum hér-
uðum þar er meira en % ræktað land.
I norðanverðu Finnlandi er veðrátta
köld, landið lirjóstrugt og lítil ræktun.
Ibúatala Finnlands er 3,5 milj. Af land-
búnaði lifa:
I Finnlandi .......... 65%
- Svíþjóð .............38%
- Noregi ............. 33%
- Danmörku ........... 33%
- íslandi ............ 44%
I Finnlandi er fjöldi af smábýlum,
þannig að % hlutar af jörðunum, 250
þús. jarðir, eiga minna en 10 lia. af
ræktanlegu landi. Aðeins 900 jarðir er
talið að eigi meira en 100 ha. af rækt-
anlegu landi.
I Finnlandi eru miklir skógar. Það
sem eigi er ræktað er að mestu skóg-
ar og vörn. Mikill hluti af skógunum er
furu- og greniskógar, en þar eru líka
einkar fallegir bjarkarskógar, trén með
þráðbeinum stofni um 30 m. háum.
Skógarnir veita Finnum mikla atvinnu,
% allra tekna landsins er talið að
komi frá skógunum. I Finnlandi hefir
skógrækt verið aukin mikið síðari árin,
og' stórar tilraunastöðvar verið settar á
stofn í þeim tilgangi.
Af liinu ræktaða landi er nær %
ræktaður með korntegundum, hitt með
grasi, og nokkuð með rófum og jarð-
eplum.
Af búpeningi er talið að sé í Finn-
landi: 300 þús. hestar, 1,3 milj. af naut-
peningi. Af sauðfé og svínum er frem-
ur fátt.