Freyr - 01.07.1929, Page 14
74
F R E Y R
vilcur voru lil vetrar. Útsæðið var ein
skeppa, liæð grassins 2 álnir. Einnig
var plægður blettur hér um bil 50 ferh.
faðmar, sem var látinn standa óálirærð-
ur, til þess vorið 1852, og aðeins flutt
þangað hnausar og ýmislegt rusl, er
var brent og undirbúið sem þurfti. síð-
an var sáð í blett þennan höfrum og
fengust 3 baggar af heyi. Til byggs var
og sáð með einni skeppu af tvíröðuðu
og sexröðuðu byggi á þrem stöðum,
þroskaðist það svo vel, að víst mundu
hafa fengist tvær tunnur, í staðinn fyrir
einar 5 skeppur af byggi, ef hrakviðri
befðu ekki upp á komið og skemt stór-
um. Til byggsins var sáð 3 vikum af
sumri, en það var slegið þá 21 vika var
af. Hæð byggsins var 214 alin. Gras
þetta reyndist betur til holda en mjólk-
ur, en hafrarnir þvert á móti, eru þeir
jafnir há að gæðum og eins þurlcvandir.
Einnig var sáð til spergels, er þroskaðist
vel. Tilraununum með plægingu og
sáningu var á þessum árum víða haldið
áfram á Norðurlandi, sérstaldega í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Sæmundur Eríksson
jarðyrkjumaður plægi þar víða á ár-
unum 1856------1859 og sáði sumstaðar
byggi og höfrum. Eigi er þess getið að
kornið liafi þroskast, en hafraheyið var
viða notað til skepnufóðurs. Á Húsavík
var 1856 girt og plægð landspilda, sem
var 514 dagslátta að stærð, og fengust
úr garði þessum 80 hestar af vænu
bandi af góðu hafraheyi, árið eftir að
eins 50 hestar, 1858 70 liestar. Bygg-
ræktin virðist alstaðar hafa mishepnast
í þessum héruðum og árangur tilraun-
anna var aðeins fastari sannfæring um,
að það væri grasræktin sem borgaði sig
best ....“.
Á síðustu áratugum aldarinnar gerði
landlæknir G. Schierbeck nokkrar til-
raunir ineð kornrækt. Hann fékk full-
þroskað bygg sum árin, en önnur var
uppskerubrestur.
Tilraunir með akuryrkjn á 20. öld.
Um aldamótin komu tilraunastöðv-
arnar til sögunnar, í Reykjavík og á
Akureyri. Þar liafa verið gerðar til-
raunir með kornyrkju. Á báðum stöð-
unum hefir fengist fullþroskað bygg í
flestum árum. Hafrar liafa einnig orðið
fullþroskaðir hetri árin, og um 10 ára
skeið félkst vetrarrúgur fullþroskaður á
Akureyri.
I stærri stíl hafa þessar kornyrkju-
tilraunir verið gerðar á Sámsstöðum í
Fljótshlíð tvö liin síðustu ár. Þær hafa
gefið góða raun, enda hefir árferði ver-
ið liið besta.
Getur Island orðið kornyrkjuland?
Af framansögðu er Ijóst, að nokkrar
korntegundir geta þrifist hér í hinum
veðursælli sveitum og í góðæri. I út-
kjálkasveitum og þar sem veðrátta er
óblíðari kenxur aldrei til mála með
nokkra kornyrkju. í veðursælli sveitun-
um verður kornyrkjan einnig óviss í
liörðum árum, í kuldum og hráslaga
tíð, jafnvel þó alls sé gætt, sem þörf
er á, svo að ræktunin sé í góðu lagi.
Kornyrkjan gefur liinsvegar litlar tekj-
ur, því hér verður eigi að tala um ann-
að en snemmvaxnar korntegundir, og
eftirtekjan af þeim er minni en af þeim
sem þroskast á lengri vaxtartíma.
Vér hyggjum því að kornyrkjan hafi
eigi verulega þýðingu á landi voru. Það
getur verið gott og blesað að gera
nokkrar tilraunir með liana og sjá
hverju fram vindur, en almenna þýð-
ingu mun liún ekki fá hér á landi. Hins-
vegar mun það liafa almenna þýðingu
að rækta hér korntegundir, einkum
hafra, til þess að nota grasið tii fóð-