Ljósmæðrablaðið - 01.11.1992, Page 5
út laun fyrir nýja ljósmæðranema, en
þegar upp var staðið eru aðeins 3 nemar
á fyrsta ári i skólanum.
Nú hef ég heyrt að fólki finnist það
bruðl í öllum sparnaðinum að halda uppi
kennslu fyrir aðeins þrjá nemendur og
má það til sanns vegar færa. En athugum
málið nánar. Lauslega áætlað var kostn-
aður fyrir hvern nemanda í LMSI árið
1990 um 200 þúsund, sem þykir ekki
mikið. Ef útgjöld skólans eru óbreytt í ár
þá nær kostnaðurinn á hvern nemanda
samt ekki 300 þúsund, en flest bendir til
þess að með hagræðingu í skólanum
verði talan miklu lægri. Hvar er bruðlið
mér er spurn? Ljósmæðramenntunin er
þjóðinni ódýr og úr skólanum hefur þjóð-
in fengið mjög hæfan og mjög ódýran
starfskraft.
Við Ijósmæður verðum að standa
vörð um nám okkar, þvi að það er grund-
völlurinn að ljósmæðrastéttinni. Gert er
ráð fyrir í áætlun stjórnvalda að siðasti
hópur ljósmæðra útskrifist frá LMSI vorið
1994 og að Ijósmæðranám hefjist í
Háskóla íslands um áramót 1994/95.
Því miður höfum við enga tryggingu fyrir
því að stjórnvöld standi við þessa áætlun.
Eg tel að ef skólinn hefði verið lagður
niður ári fyrr vegna sparnaðar Ríkis-
spítala, þá hefði það þyngt róðurinn
verulega að námið hefjist í H.í. 1994/
95. Eg minni á að á Spáni leiddi flutn-
ingur á ljósmæðranámi yfir á háskólastig
til þess að ekki hafa útskrifast ljósmæður
þar í landi í 5 ár. Slíkt má ekki henda hér
á landi.
Eg hef mikinn áhuga á að heyra frá
ijósmæðrum og komast að hvað liggur
þeim á hjarta varðandi málefni ljós-
fnæðrastéttarinnar. Eg stefni að því að
vera til viðtals á skrifstofu Ljósmæðra-
félagsins á miðvikudögum kl. 13-15. Ef
ljósmæður þurfa að hafa samband við
mig á öðrum tímum þá geta þær skilið
eftir skilabið á símsvara félagsins síma
617399, eða hringt heim til mín í síma
674164.
Fréttir frá
skrifstofu LMFÍ
Á skrifstofunni liggur frammi ferða-
tilboð á heimsþingið í Kanada, 9.-14.
maí 1993, sem er í gegnum SAS í Nor-
egi. Einnig er í undirbúningi tilboð frá
Flugleiðum.
Eyðublöð frá Tryggingastofnun ríkis-
ins fyrir „Skýrslu ljósmóður um heima-
fæðingu" fást á skrifstofu LMFÍ.
Reikningar félagsins fyrir síðasta ár
liggja frammi á skrifstofu félagsins og
verða sendir þeim ljósmæðrum er þess
óska.
Mósmæðrablaðið
3