Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Side 2
EfnisÝfiriit
T'>á HTsTjóra
Þessu blaði var í upphafi ætlað að fjalla um ráðstefnu LMFÍ í mars s.l.
en vegna sumarleyfa og annars tafðist vinnsla þess efnis. A hinn bóginn
var töluvert til af efni um brjóstagjöf og verður þetta blað því að miklu
leiti helgað brjóstagjöf.
Aðalfundur LMFÍ var haldinn hinn 9. maí s.l.. Var hann með
hefðbundnu sniði en undir liðnum önnur mál, voru mál sem þurft hefðu
ýtarlegri og lengri umfjöllun. Þar á meðal var spurningin hvort LMFI
ætti að vera áfram í BSRB, standa utan félaga eða ganga í BHM,
kynning á skýrslu Ljósmæðraráðs og formanns LMFI til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra um Ljósmæðraþjónustu á íslandi og lausleg
kynning á frumvarpi um réttindi og skyldur heilbrigðisstétta þar sem
fram kom m.a. að nái það frumvarp í gegn muni lög hverrar stéttar fyrir
sig falla úr gildi, þ.m.t. ljósmæðralög. Þetta eru ógnþrungnar fréttir fyrir
ljósmæður þar sem ljósmæðralögin hafa hingað til tryggt sjálfstæði og
sérstöðu stéttarinnar. Nái frumvarpið fram að ganga munu læknar og
jafnvel hjúkrunarfræðingar geta gengið inn í störf ljósmæðra, svo sem
nú þegar er með mæðravernd víða um land. Hvernig ætlum við að
bregðast við þessu? Getum við staðið sama um að vernda starfssvið
okkar? Eða látum við innbirðis ágreining sundra okkur og verða þannig
berskjaldaðar fyrir aðilum sem fúsir vilja taka yfir þau störf sem við
höfum hingað til talið ljósmæðrastörf? Er ekki kominn tími til að við
stöndum sterkar saman og verjum starfssvið okkar með oddi og egg? Ef
við sjálfar berum ekki virðingu hver fyrir annarri og þeim störfum sem
við vinnum, getum við ekki ætlast til að aðrir geri það. Stöndum
sterkar saman.
Kveðja,
Frá ritstjóra ..................2
Fréttir LMFÍ ...................3
Til Ljósmæðra á Islandi ........4
Breytingar í áhersluþáttum
í ungbarnavernd.................6
Minningarorð ...................7
Upplýsingar til greinahöfunda . 7
Sumarbústaður...................8
Brjóstagjöf.....................9
Sárar geirvörtur ..............12
Brjóstagjöf frh................15
Artöl og áfangar í sögu
íslenskra kvenna...............21
Alþjóðlegur staðall um markaðs-
setn. brjóstamjólkurstaðgengla 24
Tíu þrep til vel heppnaðrar
brjóstagjafar..................25
Vinna við Barnvænt
sjúkrahús......................27
Samstarfshópur um Brjóstagjöf 30
Lausar stöður..................31
Leiðbeiningar við notkun
mjaltavélar....................32
Barnamál, áhugafélag um
vöxt og þroska barna ..........34
La Leche League ...............35
Ljósirueðrablaðið
76. árgangur 2. tölublað 1998
Útgefandi: Ritnefnd: Upplag: 500 eintök sem dreift
Ljósmæðrafélag íslands Anna Eðvaldsdóttir er til allra ljósmæðra.
Grettisgötu 89 Sími: 565 2252 Verð í lausasölu: 500 kr.
105 Reykjavík Katrín E. Magnúsdóttir Verð í áskrift: 1.200kr á ári.
Sími: 561 7399 Sfmi: 561 1636 Uppsetning og prentun:
Ritstjóri: Sigríður Pálsdóttir Hagprent - Ingólfsprent ehf.
Dagný Zoega Sími: 482 2556 Grensásvegi 8
Melgerði 3 Unnur Egilsdóttir 108 Reykjavfk
108 Reykjavík Sími: 552 8576 Sími: 588 1650
Sími: 568 0718 Auglýsingaöflun: Þjóðráð
2
LJÓSMÆÐRABLAPIÐ